Frábærar vörur og enn betri þjónusta
Snyrtistofan Eva er notaleg og hlý snyrtistofa sem kappkostar að skapa rólegt og afslappanð andrúmsloft, ásamt því að veita góða, faglega og persónulega þjónustu, bæði í meðferðum sem og ráðgjöf við vöruval. Boðið er upp á alhliða úrval meðferða fyrir bæði dömur og herra. Í boði eru andlitsmeðferðir, andlitsböð, litun og plokkun, vax, fótsnyrtingar, handsnyrtingar, gelneglur, förðun og varanleg förðun.
Þær vörur sem eru í sölu hjá Snyrtistofunni Evu eru Artdeco húðsnyrtivörur, förðunarvörur og handsnyrtivörur; vörur frá Helena Rubinstein og Disel ilmir. „Markmið okkar er að viðskiptavinir geti gengið að því vísu að fá bestu mögulegu meðferð og þjónustu hverju sinni, sem hentar þeirra húðgerð og tilgangi. Í snyrtimeðferðum okkar notum við Pure Minerals vörurnar frá Artdeco. Um er að ræða frábæra steinefnalínu sem er án allra parabena. Í vörunum er einnig mikið af náttúrulegum efnum og vítamínum. Artdeco vörurnar eru þýskar og hafa notið mikilla vinsælda þar í landi og einnig í Frakklandi og Ítalíu,“ segir Ragna Björg Arnardóttir. Ásamt Kristínu Sigursteinsdóttur hefur hún rekið Snyrtistofuna Evu frá 2011. Með þeim stöllum starfa á stofunni þær Sigrún Vala Vilmundardóttir, sem er nemi og Elísabet Hólm Júlíusdóttir.
Elísabet veitir ýmsar sérmeðferðir svo sem varanlega förðun eða tattú á augabrúnir, kringum augun og á varir. Einnig framkvæmir hún Meta Therapy frá Dermatute. Þessi meðferð hefur verið afar vinsæl Anti Aging meðferð hjá fræga fólkinu í Hollywood. Meðferðin kom til Íslands fyrir rúmum tveimur árum. Um er að ræða rakameðferð sem vinnur vel á öldrunareinkennum eins og litablettum, slappleika og hrukkum, en einnig örum. Árangurinn er endurnýjun og endurbygging húðarinnar og bætt ásýnd. Meðferðin er 100% náttúruleg og sársaukalaus. Meðferðartíminn er stuttur og árangurinn er sjáanlegur strax. Einnig gerir Elísabet gelneglur.
„Við erum með nokkrar gerðir af dekurpökkum sem eru mjög vinsælir í gjafir hjá okkur. Einnig bjóðum við upp á gjafabréf sem henta öllum hvort sem meðferð er valin eða inneign á stofunni. Við erum líka mjög liðlegar ef fólk langar að skipta í aðrar meðferðir eftir á. Hér fást einnig ýmsar vörur fyrir húðina og förðunarvörur í breiðum verðflokkum. Það má segja að við séum snyrtistofa fyrir alla sem langar að gera vel við sig í dekri,“ segir Ragna.
Leyfðu okkur að dekra við þig, þú átt það skilið.
Snyrtistofan Eva er staðsett í Miðgarði að Austurvegi 4, Selfossi.
Opið er alla virka dag frá 10-17 og á laugardögum á veturna frá 10-13.
Tímabókanir í síma 482-3200.
Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu Snyrtistofunnar Evu