Höfðahöllin
Höfðahöllin er rótgróin bílasala, staðsett að Funahöfða 1, í miðju bílasöluhverfinu á Höfðanum. Þar eru til sýnis og sölu bílar bæði á útistæðum og í björtum innisal. Eigandi fyrirtækisins, Indriði Jónsson, starfar á staðnum ásamt Árna Ágústi Brynjólfssyni, en þeir félagar hafa selt bíla í þúsundatali undanfarin ár. Báðir eru þeir með mikla bíladellu og hafa haldgóða þekkingu á þeim bílum sem þeir taka að sér að selja.
Höfðahöllin hefur flutt inn nýlega bíla með góðum árangri undanfarna mánuði og oft boðið upp á spennandi kosti á frábæru verði. Nýjastir eru hinir vinsælu bílar frá Audi og VW, annars vegar Golf GTE og hins vegar Audi A3 E-tron plug in hybrid, en það stendur fyrir bíla með bensín- og rafmagnsmótorum með möguleikann á að hlaða með snúru þegar þörf er á. Núna eru sex slíkir bílar til sýnis og sölu á staðnum og ekki síst til afhendingar strax meðan það hefur verið talsverð bið eftir þeim hjá umboðsaðila. Drægni þessara bíla er um 50 km eingöngu, en með fullum bensíntanki að auki má komast allt að 900 km að sögn framleiðanda.
Nýverið komst Höfðahöllin í samband við umboðsmann Hobby-hjólhýsa á meginlandinu og eru þegar nokkur hús komin í ferli. Núna er rétti tíminn til að panta sér hús með sínum sérþörfum. Verðið er sérlega áhugavert, hafðu samband og fáðu tilboð.
Nánari upplýsingar á bilo.is eða í síma 567 4840.
Meðfylgjandi eru myndir af Audi A3 E-tron, Golf GTE og Hobby-hjólhýsi.