Fiska.is
Þorrahelgin er fram undan en þorrinn hefst föstudaginn 20. janúar. Um helgina verður Fiska.is með sölu á úrvals harðfiski og hákarli í Kolaportinu en þar er opið á laugardag og sunnudag frá kl. 11 til 17. Hákarlinn kemur frá Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi, frá hinum landsþekkta hárkarlsverkanda, Hildibrandi Bjarnasyni, og er í fremstu röð. Það sama má segja um harðfiskinn, sem kemur frá Vestfirsku harðfisksölunni.
Fiska.is er með sölu á sjávarfangi í Kolaportinu allar helgar en rekur auk þess glæsilega verslun að Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Þar er mikið úrval af asískum matvörum en einnig íslenskar sjávarafurðir á borð við harðfisk, hákarl, humar, rækjur og margt fleira. Verslunin á Nýbýlavegi er opin virka daga frá kl. 10 til 19 og um helgar frá 12 til 17. Síminn er 691 4848. Heimasíða er fiska.is og fiska.is er líka á Facebook.