„Við erum ódýrastir“
„Við hjá Betri bílakaupum erum að þjónusta fólk, sem er að kaupa bíl að erlendis frá og flytja þá til Íslands. Við sjáum um allt fyrir kaupandann, frá a – ö. Kaupsamningurinn við erlenda bílasölu er á nafni kaupandans en við sjáum um alla pappírsvinnuna og innflutninginn. Eimskip flytur bílinn og hann er tryggður alla leið,“ segir Brynjar Valdimarsson hjá fyrirtækinu Betri bílakaupum. Þessi aðferð við bílakaup tryggir kaupendum hagstæðara verð en áður hefur þekkst.
Betri bílakaup eru til húsa á tveimur stöðun, að Ármúla 4-6 og í Firði í Hafnarfirði, 2. hæð.
Að sögn Brynjars er kaupferlið hjá Betri bílakaupum mjög gegnsætt og þægilegt:
„Segjum að þú sért væntanlegur kaupandi, þú ert að leita að bíl. Þú segir okkur hvernig bíl þú vilt eignast og við finnum hann fyrir þig. Við semjum um verðið við erlenda bílasalann. Við tökum fasta þóknun fyrir allar sölur, 249.900 kr. með vsk. Þú millifærir peningana á erlendu bílasöluna. Við erum með samning við Eimskip sem þú nýtir þér. Þegar þú ert búinn að millifæra sjáum við um allt, flutninginn, skráum bílinn, komum honum á númer og afhendum þér hann hérna uppi í Ármúla 4 eða í Firði í Hafnarfirði.“
Gott úrval, hagstætt verð og mikil gæði eru það sem viðskiptavinir Betri bílakaupa uppskera. Mikil áhersla er á svokallaða græna bíla og segir Brynjar þá vera um 90% af þeim bílum sem viðskiptavinir kaupa í gegnum fyrirtækið. Er þá ýmist um að ræða rafbíla og blendingsbíla (hybrid = bensín+rafmagn).
Nánari upplýsingar eru á vefnum betribilakaup.is. Fyrirspurnum er einnig svarað í síma 511-2777.
Hér að neðan má sjá fjögur dæmi um glæsilega bíla á frábæru verði sem keyptir eru í gegnum Betri bílakaup.