Snyrtistofan Eva Selfossi
Ragna Björg Arnardóttir og Kristín Sigursteinsdóttir hafa rekið Snyrtistofuna Evu á Selfossi frá 2011. Þar bjóða þær upp á rólegt og afslappað andrúmsloft, ásamt því að veita góða, faglega og persónulega þjónustu, bæði í meðferðum sem og ráðgjöf við vöruval. Boðið er upp á alhliða úrval meðferða fyrir bæði dömur og herra. Í boði eru andlitsmeðferðir, andlitsböð, litun og plokkun, vax, fótsnyrtingar, handsnyrtingar, gelneglur, förðun og varanleg förðun.
„Við erum einnig með nokkrar gerðir af dekurpökkum sem eru mjög vinsælir í gjafir hjá okkur. Einnig bjóðum við upp á gjafabréf sem henta öllum hvort sem meðferð er valin eða inneign á stofunni. Við erum líka mjög liðlegar ef fólk langar að skipta í aðrar meðferðir eftir á. Hér fást einnig ýmsar vörur fyrir húðina og förðunarvörur í ýmsum verðflokkum. Það má segja að við séum snyrtistofa fyrir alla sem langar að gera vel við sig í dekri,“ segir Ragna.
Þær vörur sem eru í sölu hjá Snyrtistofunni Evu eru Artdeco húðsnyrtivörur, förðunarvörur og handsnyrtivörur, vörur frá Helena Rubinstein og Diesel ilmir. „Markmið okkar er að viðskiptavinir geti gengið að því vísu að fá bestu mögulegu meðferð og þjónustu hverju sinni, sem hentar þeirra húðgerð og tilgangi. Í snyrtimeðferðum okkar notum við Pure Minerals vörurnar frá Artdeco. Um er að ræða frábæra steinefnalínu sem er án allra parabena. Í vörunum er einnig mikið af náttúrulegum efnum og vítamínum. Artdeco vörurnar eru þýskar og hafa notið mikilla vinsælda þar í landi og einnig í Frakklandi og á Ítalíu,“ segir Ragna.
Elísabet veitir ýmsar sérmeðferðir svo sem varanlega förðun eða tattú á augabrúnir, kringum augun og á varir. Einnig framkvæmir hún Meta Therapy frá Dermatute. „Sú meðferð hefur verið afar vinsæl Anti Aging meðferð hjá fræga fólkinu í Hollywood. Meðferðin kom til Íslands fyrir rúmum tveimur árum,“ segir Elísabet. „Um er að ræða rakameðferð sem vinnur vel á öldrunareinkennum eins og litablettum, slappleika og hrukkum, en einnig örum. Árangurinn er endurnýjun og endurbygging húðarinnar og bætt ásýnd. Meðferðin er 100% náttúruleg og sársaukalaus. Meðferðartíminn er stuttur og árangurinn er sjáanlegur strax,“ segir Elísabet, sem gerir einnig gelneglur.
Snyrtistofan Eva er staðsett í Miðgarði að Austurvegi 4, Selfossi. Opið er alla virka daga frá kl. 10-17. Tímabókanir eru í síma 482-3200. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu Snyrtistofunnar Evu.