fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
FókusKynning

Titrarinn þinn gæti verið eitraður

Kynlífsleikföng geta innihaldið skaðleg efni – Mikilvægt að neytendur séu vakandi

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 6. apríl 2017 17:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Titrarar, þarfaþing hverrar konu, njóta sífellt meiri vinsælda. Milljónir seljast á hverju ári og þessvegna er vert að hafa í huga að sumir titrarar geta reynst skaðlegir heilsu kvenna. Nú eða karla, ef ske kynni að tryllitækin væru á kafi í „skottinu“.
[Ný rannsókn] (https://www.choice.com.au/food-and-drink/food-warnings-and-safety/plastic/articles/plastics-and-food) bendir til þess að titrarar, sem eru framleiddir úr lélegu plasti, geti haft áhrif á innkirtla líkamans.

Það getur leitt til alvarlegra heilsufarsvandamála eins og ófrjósemi eða jafnvel krabbameins.

Samkvæmt rannsókninni getur plast, sem titrar eru framleiddir úr, innihaldið skaðleg efni á borð þalöt, bisphenol A, PVC og BPA – en þessi efni gera plastið sveigjanlegra og mýkra en ella. Þá kemur fram að þalöt séu sérstaklega algeng í kynlífsleikföngum.

Í grein Daily Mail um málið kemur fram að kaupendur kynlífsleikfanga ættu að vera meðvitaðir um hættuna og taka kaupákvarðanir með hana í huga. Til dæmis ættu neytendur að skoða verðmiðann því að mjög ódýr leikföng eru yfirleitt búin til úr verra plasti. Þá ættu kynlífsunnendur að velja frekar leikföng úr hörðu plasti, sílikoni eða málmum.

Að endingu ættu kaupendur að skoða vörumerkið. Alþjóðleg stór vörumerki eru líklegri til þess að bjóða uppá gæða vöru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“