fbpx
Miðvikudagur 25.desember 2024
FókusKynning

Ofsakvíði: Lamandi ótti án fyrirvara

Einkenni kvíðakasts – Hjartað berst á fullum krafti, vöðvarnir spennast upp

Ritstjórn DV
Laugardaginn 18. febrúar 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú ert úti að ganga í skóginum og átt þér einskis ills von, sallaróleg/ur og nýtur góða veðursins og sólarinnar þar sem þú ert í sumarleyfi í fjarlægu landi. Skyndilega staðnæmist þú og það hvolfist yfir þig gífurleg hræðsla og spenna þar sem þú stendur augliti til auglits við ljón sem sér þig líka og býst til árásar. Hjartað berst á fullum krafti, vöðvarnir spennast upp og sjáöldrin víkka út, þú svitnar og ferð að anda ótt og títt. Allt gerist þetta mjög hratt þar sem þú ert að undirbúa flóttann frá ljóninu.

Lífeðlis- og efnafræðilega eiga sér stað mjög margir hlutir á sama tíma, líkaminn tekur stjórn hálfpartinn og það hellast út streituhormón og sömuleiðis adrenalín auk fjölda annarra ferla. Þú ert tilbúin/nn í hvað sem er og þú þarft alla þína orku á svipstundu eigir þú að eiga möguleika á að lifa af.

Kvíðakast

Þarna er um að ræða eðlileg viðbrögð við lífshættu sem við getum öll tengt okkur við og myndum líklega flest finna sömu líðan undir sömu kringumstæðum. En hvað ef öll þessi líðan kemur skyndilega og fyrirvaralaust þegar þú stendur í röðinni, bíðandi eftir að borga í verslun, þú ert á fundi eða í prófi, jafnvel bara steinsofandi heima uppi í rúmi. Á sama tíma er engin ástæða er fyrir því að reyna að bjarga lífi og limum á núll einni?

Ef svo er þá ertu að öllum líkindum að upplifa kvíðakast. Einkennin geta verið svæsin og einnig staðið í einhvern tíma svo þeir sem aldrei hafa upplifað slíkt geta talið sig vera að fá hjartaáfall eða viðlíka og þurfa oft og tíðum að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi.

Lamandi ótti

Ofsakvíði eða kvíðaköst sem koma með þessum hætti fram ná yfirleitt hámarki á nokkrum mínútum og ganga svo niður með eða án meðferðar. Það sem einkennir þá sem fá slík köst er að það myndast mikill kvíði og hræðsla fyrir því að fá aftur kast. Sérstaklega þegar það liggur fyrir að ekki sé um annan sjúkdóm að ræða og þessi lamandi ótti geti komið án fyrirvara nánast hvar sem er upp að nýju. Margir þróa með sér kvíðasjúkdóm vegna þessa, enn aðrir fá aldrei aftur köst. Ekki er vitað með vissu hvað veldur en það er fjölþætt. Að einhverju leyti spila erfðir þarna inn í og ytri aðstæður eins og streita, álag, áföll sem jafnvel áttu sér stað fyrir löngu, breytingar á lífsháttum, missir ástvina og þannig mætti telja áfram. Þá er einnig lýst slíku ástandi undir áhrifum áfengis og vímuefna.

Mjög mikilvægt er að greina þennan sjúkdóm og átta sig á honum þar sem hann getur haft veruleg áhrif á líf viðkomandi. Hann getur leitt til félagsfælni, vandamála í skóla eða vinnu, þunglyndis, fjárhagsvanda, áfengis og vímuefnavanda og jafnvel sjálfsvígs í verstu tilfellum. Það er því mikilvægt að leita sér aðstoðar og í samvinnu við fagaðila átta sig á eðli vandans og mögulegum meðferðarúrræðum. Þeir sem upplifa kvíðaköst ættu helst að reyna að taka saman undir hvaða kringumstæðum slíkt á sér stað, hversu oft og hve lengi einkennin vörðu. Þá er gott að hafa í huga fyrri áföll og ytri aðstæður sem gætu hafa leitt til slíks og vera reiðubúin/nn að ræða það.

Margvísleg úrræði

Sem betur fer eru til margvísleg úrræði sem virka oft og tíðum mjög vel svo það er engin ástæða til að burðast með ofsakvíða og kvíðaköst og vil ég hvetja þá sem glíma við þennan vanda að leita sér hjálpar. Greiningin fer að vissu leyti fram með því að útiloka líkamlegar ástæður og til þess getur þurft einhverjar rannsóknir, en hin eiginlega greining er fyrst og fremst bundin við samtal og lýsingu einstaklings á einkennum sínum auk spurningalista í völdum tilvikum.

Blönduð meðferð algengust

Helstu meðferðarúrræði eru samtalsmeðferð og hugræn atferlismeðferð sem hafa dugað mjög vel. Er þar bæði verið að kenna viðkomandi einstaklingi hvernig hann geti tekist á við vandann og ekki síst komið í veg fyrir að hann brjótist út. Lyfjameðferð er vel þekkt og hefur einnig dugað vel hjá mörgum og er þar fyrst og fremst verið að beita svokallaðri þunglyndis- og kvíðalyfjameðferð, SSRI eða SNRI.

Þá er vel þekkt að notkun róandi lyfja er talsverð og virkar ágætlega tímabundið, en er fyrst og fremst einkenna- og bráðameðferð og getur leitt til ávana. Því er mesta áherslan á langverkandi lyf sem hafa sýnt betri virkni. Blanda af samtals- og lyfjameðferð er líklega algengust allra en áherslan ætti að vera á sjálfshjálp og styrkingu einstaklingsins og að reyna að nota sem minnst af lyfjum nema nauðsynlegt reynist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“