fbpx
Laugardagur 30.nóvember 2024
FókusKynning

Frábært fjölskyldusport

Kynning

Bláfjöll og Skálafell hafa verið blessuð af snjóguðunum

Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 31. janúar 2017 14:00

Bláfjöll og Skálafell hafa verið blessuð af snjóguðunum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skíðafærið hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarna mánuði og mikið verið um rigningar, sem er algert eitur í hugum skíðaiðkenda. En skjótt skipast veður og nú virðist sem skíðaiðkendur á höfuðborgarsvæðinu geti tekið gleði sína á ný í Bláfjöllum og Skálafelli. Svæðin vinna vel saman, því þegar annað hentar vel í ákveðinni vindátt, þá hentar hitt vel í hinni. Það eykur töluvert líkur á því að menn komist á skíði í góðu færi. „Við erum búin að vera með opið í sex daga núna í Bláfjöllum fyrir almenning, frá því fyrsta janúar. Þessi vetur hefur farið seint af stað, sérstaklega miðað við síðasta vetur sem var einstaklega snjóríkur. Fólk flykkist til okkar, enda marga farið að klæja vegna snjóleysis. Við höfum svo verið að fá góðan snjó síðustu daga ofan á grunninn og nú er enginn hiti að ráði í kortunum. Brautirnar eru flestallar komnar inn og við sjáum fram á frábært skíðafæri,“ segir Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæðanna.

Byrjendur á námskeiði.
Byrjendur á námskeiði.

Mynd: ODD STEFAN

Dásamlegt að sjá byrjendur taka sín fyrstu skref

„Það er alltaf mikil eftirspurn í skíða- og brettaskólann hjá okkur og það er einstakt að sjá alla þessa byrjendur taka sín fyrstu skref. Það hefur orðið gríðarlegur vöxtur í skíðaiðkun undanfarin ár og það held ég að megi þakka samfélagsmiðlabyltingunni. Fólk deilir upplifun sinni í fjallinu og þá rifjast upp fyrir öðrum góðar skíðastundir. Þetta er líka tilvalin íþrótt fyrir vini og fjölskyldur til að stunda saman og það er fátt skemmtilegra en að sjá barnið sitt stíga sín fyrstu skref á skíðunum. Einnig hafa undanfarnir vetur verið gríðarlega stöðugir hvað varðar snjó og mikið verið opið á skíðasvæðunum. Það stuðlar að því að fólk kemur sér upp búnaði til þess að stunda íþróttina reglulega,“ segir Magnús. Í Bláfjöllum er einnig hægt að leigja búnað; skíði, bretti, skíðaskó og stafi. Fyrir þá sem eru að koma í fyrsta skipti er bráðsniðugt að leigja, þótt það kosti svolítið, til þess að átta sig á því hvort þetta sé eitthvað sem maður vill fjárfesta í. Svo er alltaf hægt að kaupa notaðan búnað eða nýjan, eftir því sem hentar.

Fegurð í fjöllunum.
Fegurð í fjöllunum.

Það geta allir rennt sér niður brekku

Bláfjöll skiptast upp í tvö svæði, Heimatorfu og Suðursvæði. Brekkurnar eru ólíkar og henta öllum getustigum. Því ættu allir að geta fundið sér brekku eða brekkur við hæfi. „Við erum með alls 15 lyftur hér í Bláfjöllum og að meðaltali er hægt að skíða 2–3 brautir frá hverri lyftu, allt eftir því hvar þú ferð úr. Svo erum við með stórsniðugt Töfrateppi. Um er að ræða algera byltingu fyrir byrjendur. Þetta er færiband sem flytur fólk upp auðvelda brekku. Þetta er þvílíkur munur fyrir þá sem eru að skíða með börnunum sínum, því nú þarf ekki lengur að klöngrast með barnið í diskalyftu. Það getur bara komið sér sjálft upp brekkuna,“ segir Magnús.

Gönguskíðin eru góð fyrir sálina

Það hefur verið gríðarleg uppsveifla í gönguskíðamennskunni og má það líklega þakka Gönguskíðafélaginu Ulli og fleiri aðilum sem bjóða upp á námskeið í gönguskíðum. Þessi námskeið eru alla jafna þéttsetin af nýliðum. Í Bláfjöllum eru mislangar gönguskíðabrautir lagðar á hverjum degi þegar opið er á svæðinu. Þegar kominn er snjór yfir allt eru lagðar um fimm kílómetra spor á venjulegum virkum degi en um helgar eru lagðar lengri leiðir, eða um 10–15 kílómetrar. „Það er ótrúlegt að fara eftir þessum leiðum. Allt í einu ertu orðinn einn með sjálfum þér uppi á heiði með frábært útsýni yfir bæði Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Þetta er í raun einfalt sport, maður er fljótur að ná tökum á því og svo fer maður þetta á sínum hraða. Þetta er alveg ótrúlega hreinsandi og róandi íþrótt,“ segir Magnús.

Bláfjallaskáli

Á svæðinu eru allmargir skálar í eigu íþróttafélaganna og er gestum velkomið að nota aðstöðuna þar. Bláfjallaskáli er aðalskálinn og sá fyrsti sem maður sér þegar komið er inn á svæðið. Hann er stærstur og er stjórnstöðin staðsett þar. Bláfjallaskáli er rekinn af stjórn svæðisins og er þar veitinga- og miðasala og leiga á skíða- og brettabúnaði.

Skíðað í skammdeginu.
Skíðað í skammdeginu.

Mynd: Lifandi Mynd

Skálafell – ósnortið land

Skálafell er alla jafna opið um helgar og frá og með 4. febrúar verður hægt að renna sér í Skálafelli. Núna hefur hins vegar snjóað töluvert þar og er snjórinn troðinn þar jafnharðan. Skálafell hefur gríðarlegan sjarma þar sem svæðið snýr á móti sólu og þar er töluvert meira af ósnortnu landi en í Bláfjöllum. Á móti kemur að þar er ekki aðstaða til þess að setjast inn og snæða nesti. Þar eru þrjár diskalyftur og ein stólalyfta, sem þó er lengsta stólalyftan á landinu, á meðan lyfturnar eru 15 í Bláfjöllum og fólkið skiptist þar í raðir á milli þeirra. Því er flutningsgeta í Skálafelli töluvert minni en í Bláfjöllum. „En kosturinn er sá að þrátt fyrir langar raðir í lyftuna, þá er maður tiltölulega einn og frjáls þegar maður rennir sér niður, á meðan maður í Bláfjöllum hefur sjaldan brekkuna út af fyrir sig,“ segir Magnús.

Magnús Árnason, framkvæmdastjóri Skíðasvæðanna.
Magnús Árnason, framkvæmdastjóri Skíðasvæðanna.

Nestið og miðann í leiðinni

Miðasölukassa er víða að finna á höfuðborgarsvæðinu. Þar má kaupa kort í lyfturnar í Bláfjöllum og Skálafelli. Miðasölukassa er að finna í N1 í Ártúnsbrekku í Reykjavík, Lækjargötu í Hafnarfirði, Stórahjalla í Kópavogi og svo í Mosfellsbæ. Skálafell er mjög vinsælt meðal Mosfellsbæinga og lengi vel var eingöngu hægt að fá lyftukort í miðasöluskúrnum í Skálafelli. Því munu þessir nýju miðasölukassar létta töluvert álagið þar og minni líkur til þess að langar biðraðir myndist við miðasöluskúrinn. Nú er hægt að kaupa sér nesti og miða í leiðinni.

Skálafell og Bláfjöll eru bæði í um 25 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Opið er í Bláfjöllum á virkum dögum kl. 14–21 og um helgar 10–17.
Opið er í Skálafelli allar helgar frá 4. febrúar og fram yfir páska kl. 10–17.
Upplýsingasími: 530-3000
Skálafell, sími: 566-7095
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Skíðasvæðanna, og á Facebook-síðunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“