IP-dreifing
Í hverri einustu matvöruverslun landsins má nú fá súran hval og hákarl í glærum lofttæmdum umbúðum. Hér er um að ræða gæðavöru frá fyrirtækinu IP-dreifingu sem staðsett er að Fornubúðum 3 í Hafnarfirði. „Þetta er súrhvalur af langreyð, af stórhveli, og síðan er þetta hákarl tilbúinn til neyslu. Þetta er allt í glærum vacuum-pakkningum,“ segir Gunnar Bergmann Jónsson hjá IP-dreifingu en hann býður ekki bara upp á hval á þorranum:
„Við erum að selja þetta allt árið og inn í allar verslanir, en á þessum árstíma springur þetta út og salan tekur mikið stökk.“
Hvalkjöt er líklega með því hollara sem hægt er að fá af þorramatnum enda stútfullt af próteini. Hákarlinn er ekki allra en þeir sem eru fyrir hann verða ekki sviknir af hákarlinum frá IP-dreifingu.
Eins og fyrr segir má fá súran hval og hákarl í öllum matvöruverslunum núna en IP-dreifing býður þessa gæðavöru líka til sölu fyrir þorrablót og á veitingastaði. Nánari upplýsingar og pantanir eru í síma 577 3408 en einnig má senda tölvupóst á netfangið ipdreifing@ipdreifing.is.