fbpx
Fimmtudagur 28.nóvember 2024
FókusKynning

Íslenskur jarðhitakísill gegn hárlosi og húðvandamálum

Kynning

GeoSilica

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 20. september 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kísilsteinefnið geoSilica inniheldur hreinan jarðhitakísil sem unninn er úr jarðhitavatni Hellisheiðarvirkjunar. Læknisfræðilegar rannsóknir hafa leitt í ljós að kísill gegnir mikilvægu hlutverki í mannslíkamanum og er honum nauðsynlegur. Kísill er sérstaklega mikilvægur fyrir heilsu beina enda örvar hann myndun kollagens í líkamanum, en kollagen er helsta uppistaða bandvefjar sem er að finna í beinum, húð, hári, nöglum, liðböndum, sinum og brjóski. Kísill hjálpar einnig kalki að koma sér fyrir í beinvef og er því mikilvægt að taka inn kísil samhliða kalkinntöku til að kalkið nýtist sem best. Inntaka kísilsteinefnis gæti haft fyrirbyggjandi áhrif gegn beinþynningu.

Kísilsteinefnið geoSilica styrkir bandvef, styrkir hár og neglur og vegna betri myndunar kollagens getur inntaka kísilsins stuðlað að sléttari og fallegri húð.

Fyrirtækið geoSilica Iceland hefur þróað vöruna, framleiðir hana og selur. Þau Fidu Abu Libdeh og Burkni Pálsson, ásamt Ögnum ehf., stofnuðu fyrirtækið árið 2012. Um haustið það ár fékk geoSilica verkefnastyrk Tækniþróunarsjóðs til rannsókna og þróunar á vörunni. Hún kom síðan á markað í desember árið 2014: 100 prósent hágæða náttúrulegt íslenskt kísilsteinefni í vökvaformi, tilbúið til inntöku.

GeoSilica kísilsteinefnið fæst í heilsuvörubúðum, öllum helstu apótekum, Nettó og öllum verslunum Hagkaupa. Varan er einnig til sölu í vefverslun á heimasíðu geoSilica, geosilica.is. Þar er jafnframt að finna ítarlegan og aðgengilegan fróðleik um vöruna.

Reynslusaga: Sá verulegan mun eftir tvær vikur

Margir hafa afar góða reynslu af notkun geoSilica og má lesa nánar um það á vefnum geosilica.is. En hér deilir Ásdís Geirs einstaklega jákvæðri reynslu sinni af notkun geoSilica:

Nokkrum mánuðum eftir að ég átti yngri dóttur mína í nóvember 2014 fór að bera á miklu hárlosi hjá mér. Ásamt því var ég mjög slæm í húðinni og neglurnar á mér brotnuðu endalaust. Mér var þá bent á kísilsteinefnið frá geoSilica. Það er 100% náttúrulegt steinefni sem er þróað og framleitt á Íslandi úr jarðhitavatni frá Hellisheiðarvirkjun.

Kísill er steinefni sem finnst í náttúrunni og ýmsum fæðutegundum. Kísill er nauðsynlegt næringarefni fyrir líkamann en hann gegnir lykilhlutverki í myndun og viðhaldi beina. Kísill getur einnig auðveldað líkamanum upptöku á öðrum steinefnum, eins og kalki og magnesíum sem dæmi.

Kísilsteinefnið kemur í vökvaformi og ætlast er til að maður taki inn 1 msk. (10 ml) á hverjum degi. Það sem mér fannst

líka virkilega gott við kísilinn er að hann inniheldur engin aukaefni – aðeins kísil og vatn – og er einnig bragðlaus. Ég ákvað að prófa enda orðin frekar langþreytt á þessu ástandi og búin að prófa bæði sjampó fyrir hárlos, ýmis krem og naglaherði. Ein flaska dugði mér í einn mánuði og eftir um tvær vikur var ég farin að sjá verulegan mun á húðinni, hárinu og nöglum. Ég ákvað því að taka aðra góða törn og keypti flöskur næstu tvo mánuðina og árangurinn lét ekki á sér standa!

Ég náði svo að sannfæra manninn minn um að prófa kísilinn líka. Hann er með psoriasis en kísillinn hefur reynst fólki með psoriasis einstaklega vel. Hann sá einnig mikinn mun á húð sinni og margir blettir sem hann var með urðu þynnri og minnkuðu til muna.

Síðan þá höfum við nokkrum sinnum tekið tarnir með kísilinn frá geoSilica og alltaf sé ég jafn mikinn mun á mér og þá sérstaklega á húðinni og nöglunum. Auk þess finnst mér þetta minnka slen og stirðleika sem oft hellist yfir marga yfir vetrartímann.

Kísillinn getur meðal annars stuðlað að:
Fyrirbyggingu við beinþynningu
Styrkingu á hjarta- og æðakerfi líkamans
Heilbrigði húðar og hárs
Sterkari nöglum
Góðri heilsu
Losun áls úr líkamanum
Aukinni upptöku annarra steinefna
Örvun kollagenmyndunar

Það er alltaf gaman að deila góðum lausnum og vörum með öðrum!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Umpólun Snorra?

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni