fbpx
Fimmtudagur 28.nóvember 2024
FókusKynning

Engar tvær veislur eins

Kynning

Culina býður upp á mjög mikla sérþjónustu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 16. september 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mín sérstaða felst meðal annars í því að ég þjónusta margvíslega hópa. Þegar hópur fólks er samankominn er eðlilegt að einhver hluti af þeim hópi sé grænmetisætur og einhverjir séu með ýmiss konar fæðuóþol eða ofnæmi. Þá reyni ég að setja matseðlana saman með það fyrir augum að allir geti fengið það sem þeir vilja. Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að semja matseðlana með hverjum og einum þannig að engar tvær veislur eru alveg eins því kröfurnar og væntingarnar eru misjafnar, hóparnir eru misjafnir að samsetningu og maður reynir að endurspegla þetta í hverri veislu. Ég býð ekki upp á tilboð A, B eða C heldur er hver veisla einstök.“

Þetta segir Dóra Svavarsdóttir, eigandi veisluþjónustunnar Culina, en hún leggur mikla áherslu á að mæta sérþörfum allra og gera hverja og eina veislu einstaka:

„Það er líka mjög eðlilegt að veitingarnar endurspegli fólkið sem er að bjóða til veislu og mér finnst afskaplega gaman að vinna á þennan hátt með fólki, finna út uppáhaldsmatinn og spinna út frá því hvað hægt er að gera. Síðan eru það önnur tilefni eins og til dæmis árshátíðir eða haustfagnaðir á vinnustöðum, þá eru oft einhver þemu eða verið að búa til einhverja sérstaka stemningu í fyrirpartíinu. Þá er gaman að halda áfram með það út í gegnum matinn líka.“

Allt frá vegan upp í svínslæri

Um áherslur í matargerðinni almennt segir Dóra:

„Ég átti og rak á sínum tíma grænmetisstaðinn Á næstu grösum í tíu ár þannig að mínar rætur eru grænar. Culina býður vissulega upp á kjötrétti fyrir þá sem það vilja en þegar maturinn kemur frá okkur má samt alltaf búast við því að töluvert stærri hluti hans sé grænmeti en tíðkast hjá öðrum. Ég hef líka mikla reynslu af því að vinna í samráði við fólk sem hefur ýmiss konar fæðuofnæmi og get miðlað af þeirri reynslu. Mér finnst líka alveg glatað að fólk geti ekki borðað matinn í sinni eigin veislu og vil koma í veg fyrir slíkar uppákomur. Það er lágmarkskrafa. Það hefur verið mikil vakning í veganisma síðastliðin ár – þetta hefur alveg sprungið út – og undanfarið hef ég unnið með nokkrar veislur þar sem fólk hefur ákveðið að bjóða eingöngu upp á vegan-fæði. Mér hef afskaplega gaman af slíkum verkefnum. Á hinn bóginn hef ég líka verið með veislur þar sem í boði eru lambaskankar, svínslæri og fleira þvíumlíkt. Á endanum snýst þetta alltaf um óskir viðskiptavinarins.“

Aðspurð hvers konar veislum hún sinni mest á þessum árstíma segir Dóra að haustfagnaðir og afmælisveislur séu tíð verkefni þessa dagana en síðan eru jólahlaðborðin framundan. Hún segir líka að það séu strax farnar að berast fyrirspurnir vegna fermingarveislna á næsta ári en það sé gott að skipuleggja veislur með góðum fyrirvara:

„Það gefur manni tíma til að koma með hugmyndir og henda boltanum á milli. Hvað á veislan til dæmis að kosta?

Dóra Svavarsdóttir
Dóra Svavarsdóttir

Kostnaðurinn er jafn misjafn og veislurnar eru margar. Þess vegna er gott að fólk sé búið að búa sér til ákveðinn ramma fyrirfram. Það er síðan hægt að laga veisluna að kostnaðarrammanum hverju sinni eða endurskoða kostnaðarrammann. Það er hægt að gera ýmislegt með góðu samtali og samvinnu. Þú færð auðvitað ekki humarhala og nautalundir fyrir klink en það er hægt að gera frábæra veislu úr ódýrara hráefni og vinna það öðruvísi.“

Til að panta veislu eða senda fyrirspurnir er best að hafa samband í gegnum netfangið dora@culina.is. Einnig má hafa samband í símanúmerið 892-5320. Síðan er gaman að skoða heimasíðuna, culina.is, þar sem finna má fróðlegar og aðgengilegar upplýsingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Umpólun Snorra?

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni