fbpx
Fimmtudagur 28.nóvember 2024
FókusKynning

Ekta danskt smurbrauð upp á gamla mátann

Kynning

Smurbrauðsstofa Sylvíu, Laugavegi 170

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 16. september 2016 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Pétursdóttir, matreiðslumeistari með diplóma í danskri smurbrauðsgerð, rekur Smurbrauðsstofu Sylvíu að Laugavegi 170. Þar er boðið upp á veisluþjónustu auk þess sem starfræktur er lítill veitingastaður þar sem boðið er upp á súpu og smurbrauð í hádeginu, en þetta nýta sér margir sem vinna í nágrenninu. Guðrún keypti fyrirtækið af tengdamóður sinni, Sylvíu, síðastliðið vor, en Sylvía, sem er lærð smurbrauðsjómfrú frá Danmörku, rak Smurbrauðsstofu Sylvíu í aldarfjórðung. Þetta er því fyrirtæki sem stendur á gömlum og traustum grunni og sérhæfir sig í sinni kunnáttu og færni.

„Ég held að danska smurbrauðið gefi okkur ákveðna sérstöðu því fyrir utan Jómfrúna við Lækjargötu eru engir aðrir sem leggja alla áherslu á danskt smurbrauð,“ segir Guðrún Pétursdóttir. Hún lærði matreiðslu fyrst í Perlunni, fór síðan í formlegt matreiðslunám og útskrifaðist sem meistari. Smurbrauðsgerð lærði hún af tengdamóður sinni og lauk diplóma með lokaprófi að viðstöddum prófdómara, en fagið er ekki kennt á Íslandi.

Smurbrauðsgerðin verður áfram þungamiðjan í starfseminni en auk þess býður Guðrún upp á ýmislegt annað, til dæmis tapasrétti, kökuhlaðborð og skrautlegar og afar girnilegar brauðtertur.

„Fyrirtæki leita mikið til mín og panta fundarbrauð, við erum líka mjög oft með veitingar í erfidrykkjum,

en síðan eru þetta líka afmælisveislur, fermingarveislur og fleiri stórveislur,“ segir Guðrún. Hún afgreiðir pantanir um helgar ef pantað er fyrir helgi og er sú þjónusta mikið notuð. Aðspurð viðurkennir Guðrún að hún sé alltaf vinnandi en hún hefur líka afar gaman af vinnunni.

Veitingastaðurinn að Laugavegi 170 er opinn virka daga frá kl. 11 til 17 en tekið er við pöntunum á öðrum tímum í síma 552-4825. Facebook-síða Smurbrauðsstofu Sylvíu er mjög lífleg, þar gefur að líta myndir af fallegum og skrautlegum réttum og reglulega eru í gangi skemmtilegir verðlaunaleikir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Umpólun Snorra?

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni