Vegamálun GÍH
Vegamálun GÍH annast bílastæðamálun og aðrar tengdar gatnamerkingar. Fyrirtækið er með margra ára reynslu í vegmerkingum og hefur tekið þátt í hinum ýmsu verkefnum.
„Við búum yfir fagþekkingu í bílastæðamálun sem nauðsynlegt er að hafa til þess að ná sem bestri nýtni úr bílaplaninu,“
segir Gautur Ívar Halldórsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
„Kostnaður við að mála eitt dæmigert húsfélagsplan er oft minni en fólk heldur. Metraverð fer eftir fjölda; því fleiri metrar því lægra einingarverð,“ segir Gautur Ívar aðspurður um kostnað við framkvæmdir sem þessar.
„Áreiðanleg og góð þjónusta er okkar helsta markmið og að viðskiptavinurinn verði fyrir sem minnstum óþægindum á framkvæmdatíma.“
Sumarið 2015 var mjög annasamt hjá fyrirtækinu þar sem starfsemin fór vítt og breitt um landið. „Við vorum með
verkefni á Akureyri, Vestfjörðum og Suðurlandi og fórum á Vík í Mýrdal, svo dæmi séu tekin. Vegamálun GÍH tók þátt í verkefni með Sjóvá þar sem málaður var SMS borði við Verzlunarskóla Íslands til að minna á slysahættuna við farsímanotkun undir stýri.
Fyrirtækið er búið að vaxa ár frá ári og er stefnt á að bæta við vélum og tækjum í flotann til að geta annast fleiri verkefni,“ segir Gautur Ívar að lokum.
Það er frítt að fá tilboð í bílaplanið, hægt er að óska eftir tilboðum á heimasíðu fyrirtækisins www.bilastaedamalun.is, í gegnum netfangið gih@gih.is eða í síma 894-1500.