fbpx
Föstudagur 25.apríl 2025
FókusKynning

Eyjabiti: Meinhollur, ljúffengur og sívinsæll

Kynning

Inniheldur um 82% prótein

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 4. júní 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eðlilega tengja margir Eyjabita við Vestmannaeyjar enda voru harðfiskafurðir undir þessu nafni framleiddar þar um tíma. En fyrir 20 árum var stofnuð fiskvinnslan Darri á Grenivík sem keypti rekstur Eyjabita og síðan hefur Eyjabitinn verði framleiddur á Grenivík. Darri er í eigu Heimis Ásgeirssonar og sinnir eingöngu harðfiskvinnslu en hráefnið er keypt á frjálsum markaði. Um 12 til 16 manns starfa hjá fyrirtækinu hverju sinni, einhverjir í hlutastarfi, en ársverk eru alls 13.

„Við erum með þrjár fisktegundir, þorsk, ýsu og steinbít, og úr þessu hráefni framleiðum við 7–8 vörutegundir. Til dæmis eru það beinhreinsuð, roðlaus þorskflök í alls konar pakkningum. Við erum líka með beinhreinsuð ýsuflök og bitafisk úr ýsu. Þá erum við með svokallaða óbarða ýsu, eins og hún kom úr hjallinum í gamla daga. Sumir vilja fiskinn þannig, það er áður en hann valsast. Þá er hægt að brjóta sér af honum til að maula,“ segir Heimir.

Harðfiskur er rómuð heilsuvara og inniheldur um 82% prótein. Af u.þ.b. 100 kílóum af slægðum fiski koma 8,2 til 8,5 kíló af harðfiski en afgangurinn er vatn, bein, hausar og annað. Það hverfur því engin næring við þurrkunina.

Harðfiskur hefur lengi verið vinsæl vara en að sögn Heimis hafa vinsældir Eyjabitans farið mjög vaxandi undanfarin ár og hann er til sölu í nær öllum verslunum sem selja matvöru:

„Okkur hefur alltaf tekist að selja allt sem við framleiðum, en árleg framleiðsla núna er úr um 500 tonnum af slægðum fiski. Úr því vinnum við um 42 tonn af harðfiski,“ segir Heimir og ljóst er að fólk kann sífellt betur að meta þessa hollu og próteinríku vöru. Segir Heimir að aukin umræða um hollt mataræði og heilsusamlega lifnaðarhætti vinni með Eyjabitanum.

Salan hjá Darra er þó ekki bundin við innanlandsmarkað því um 40% af framleiðslunni fara til útflutnings.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
18.06.2024

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn
Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær
Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb