fbpx
Föstudagur 25.apríl 2025
FókusKynning

Humarsalan: Sérfræðingar í sjávarfangi

Kynning

Hráefni í hæsta klassa

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 3. júní 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Humarsalan er fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu á humri fyrir innanlandsmarkað. Fyrirtækið býður verslunum, veitingahúsum, veisluþjónustum og einstaklingum upp á gæða humar frá Skinney-Þinganesi á Hornafirði. „Við erum sérfræðingar í sjávarfangi og bjóðum aðeins upp á hágæða hráefni,“ segir Guðjón Vilhelm Sigurðsson, eigandi Humarsölunnar.

Humarsalan: Tákn um gæði

Þjónusta og gæði ásamt stöðugleika í afhendingum er okkar leiðarljós hjá Humarsölunni!
Þjónusta og gæði ásamt stöðugleika í afhendingum er okkar leiðarljós hjá Humarsölunni!

Humarsalan var stofnuð í janúar 2004. „Markmið okkar er að bjóða upp á fyrsta flokks humar allt árið um kring og veita fyrirtaks þjónustu,“ segir Guðjón. Fljótlega eftir stofnun fyrirtækisins var viðskiptavinum einnig boðið upp á steinbíts- og skötuselskinnar, sem njóta mikilla vinsælda. „Orðstír fyrirtækisins hefur vaxið jafnt og þétt og má með sanni segja að merki Humarsölunnar sé tákn um gæði,“ segir Guðjón.

Hráefni í hæsta klassa

Humarsalan dreifir og selur humar meðal annars frá Skinney-Þinganesi á Hornafirði. „Við bjóðum aðeins upp á hráefni í hæsta klassa frá öflugustu humarútgerð landsins,“ segir Guðjón. „Það hefur löngum loðað við Hornafjörð að þar sé besta humarinn að fá,“ bætir hann við. Humarsalan selur einnig aðrar afurðir Skinneyjar-Þinganess.

Íslenskt hráefni mjög vinsælt

„Steinbítskinnar og léttsaltaðar þorsklundir njóta orðið sífellt meiri vinsælda, og finnum við fyrir miklum áhuga á íslensku sjávarfangi jafnt hjá veitingastöðum og hinum almenna neytanda.“

Mikið af nýjungum í gegnum árin

Humarsalan býður upp á mjög mikið úrval af humri með skel og án skeljar, og hefur skelfletti humarinn orðið sífellt vinsælli. Fólk er farið að nota skelfletta humarinn í ótrúlegustu matargerð eins og t.d. ommelettur, pítsur, samlokur og margt fleira. Einnig hafa aðrar íslenskar sjávarafurðir eins og steinbítskinnar, skötuselskinnar, léttsaltaðar þorsklundir, ásamt innfluttu sjávarfangi eins og risarækju, hörpuskel, túnfiski og fleiru, verið mjög vinsælar.

Á vörulista Humarsölunnar hafa verið að bætast við nýjungar í gegnum árin og koma viðskiptavinir Humarsölunnar víða að. ,,Við erum því bjartsýn og sjáum mikið af tækifærum,“ segir Guðjón að lokum.

Á heimasíðunni www.humarsalan.is er gott yfirlit yfir vöruúrvalið. Einnig má þar finna fjölmargar uppskriftir af humar og fiskréttum.

Netfang: humarsalan@humarsalan.is. Sími: 867-6677.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
18.06.2024

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn

Mikilvægt að byrja snemma að spá í lífeyri – Því yngri, því meira færðu fyrir 1.000 kallinn
Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær
Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb