fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
FókusKynning

Ekkert jafnast á við hefðbundinn ítalskan ís

Kynning

Paradís, Njálsgötu 23, 101 Reykjavík

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 7. maí 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gelato – ítalskur ís. Margir vita fátt betra og í þeirra hópi er Alexandra Rut Sólbjartsdóttir. Hún lét sig dreyma um að opna ísbúð með ítölskum ís, en þó mjög stutt, því Alexandra lætur drauma sína rætast, eða eins og hún segir: „Ef ég hef ástríðu fyrir einhverju þá framkvæmi ég það.“ Hún gerði sér því lítið fyrir og lærði ísgerð í Bologna á Ítalíu. Í kjölfarið opnaði hún ísbúðina Paradís að Njálsgötu 23.

Alexandra, sem er 26 ára, segir að ísgerðarnámið hafi verið töluvert umfangsmeira en hún átti von á:

„Þetta var töluvert ferli á undan, ég fékk sendar margar bækur og mikið lesefni sem ég þurfti að kynna mér áður en ég fór út. Ég var því komin með góðan grunn áður en ég fór út en eftir það tók við seta á skólabekk í Bologna, í tvær vikur, níu klukkustundir á dag.“

Er það svona mikil kúnst að búa til ís?

„Það er alveg hægt að opna ísbúð án þess að kunna neitt og vera bara með uppskriftabók. En ef það verður bilun í vélunum þá veit fólkið ekkert hvernig á að búa til ís. Ég vildi hafa þetta þannig að ég þyrfti enga vél, bara dollu og gæti hamrað þetta saman.“

Ítalskur ís er rómaður. Hvað er það sem einkennir hann?

„Þetta er heimagerður ís, þ.e.a.s. búinn til á staðnum. Þetta eru alls konar ísgerðir sem koma ekki beint úr vél. Síðan eru bragðtegundirnar margar og framandi, til dæmis Oreo-ís og ís með ostakökubragði. Síðan er það sorbet – mjólkurlausi ísinn. Hann er afskaplega vinsæll á sumrin, sérstaklega ef heitt er í veðri, vegna þess að mjólkurleysið gerir hann svo ferskan.“

Paradís býður upp á 10 gerðir af mjólkurís og 6 gerðir af sorbet-ís. Bragðtegundirnar eru síðan nánast óteljandi.

Hvað mjólkurísinn varðar þá er í Paradís settur rjómi í alla mjólkurísblönduna enda hefur Alexandra komist að því að fólk vill hafa rjómabragðið með.

Paradís var opnuð sumarið 2014 og heldur núna inn í sína aðra heilu sumarvertíð. Á vorin og sumrin verður sprenging í viðskiptunum en reyndar er líka mikið að gera á veturna:

„Við erum með marga fastakúnna sem koma allt árið um kring, sumir jafnvel daglega, og eru sólgnir í sinn uppáhaldsís. En á sumrin er þetta svo mikið að við verðum að bæta verulega við starfsfólki. Við erum með alveg frábært starfsfólk sem hefur flest verið með okkur frá því við byrjuðum,“ segir Alexandra.

Sem fyrr segir er ísbúðin Paradís að Njálsgötu 23 og hún er opin frá 12 á hádegi til 23 á kvöldin. Heimasíðan www.isparadis.is
Facebook síðan er www.facebook.com/paradisicecream/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni