Epla-nachos
Þriðji Snarl-þátturinn inniheldur ljúffenga en jafnframt einfalda aðferð við að búa til epla-nachos.
Markmið Snarlsins er að vekja áhuga hjá krökkum á að læra að elda sjálf holla og fljótlega rétti eftir skóla og hvetjum við ykkur til að nota myllumerkið #snarlið
Vantar ykkur einfalda og þægilega lausn af góðu nasli? Snarlmeistarinn og sjónvarpskokkurinn Ebba Guðný er þekkt fyrir að kenna okkur, jafnt ungum sem öldnum, að elda afbragðsgóða og um leið holla rétti.
Ebba í samstarfi við Krónuna setti saman nokkur stutt myndbönd sem innihalda einfaldar og hollar uppskriftir. Hér að neðan sjáum við þær Ebbu og Allý matreiða epla-nachos.
1 stórt epli eða 2 minni
(pink lady, voða góð)
Safa úr 1/4-1/3 sítrónu eða límónu
(má sleppa en er mjög gott)
1-2 msk. lífrænt möndlusmjör
(eða gróft hnetusmjör)
40g 50% eða 70% súkkulaði
(70% súkkulaði er minna sætt)
1-2 msk. saxaðar pekanhnetur
1-2 msk. kókosmjöl