Varanleg vatnsvörn á svalir og þök kemur í veg fyrir tjón
Þakplan ehf. er fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í lagningu þakdúka, hefur 24 ára reynslu í faginu og afar mikla þekkingu og kunnáttu á þéttingu á flötum þökum. Með viðskiptum við Þakplan tryggja húseigendur sér frábæran og endingargóðan þakdúk og framúrskarandi þjónustu. Þakplan býður upp á lausn við þéttingu á flötum þökum sem telst ein sú besta á markaðnum, enda fylgir henni tíu ára ábyrgð.
Margir húseigendur þekkja af sárri og kostnaðarsamri reynslu að vatn er oft til vandræða og skaða. Sikaplan PVC þakdúkar, sem Þakplan selur og leggur, eru varanleg vatnsvörn á svalir og þök. Öll samskeyti eru soðin saman og vatnið á enga leið í gegnum dúkinn sem er níðsterkur og algjörlega viðhaldsfrír.
Sikaplan þakdúk er hægt að leggja allt árið um kring og sérmenntaðir starfsmenn Þakplans sjá um að leggja allan dúk sem fyrirtækið selur. Þetta ásamt ótvíræðum gæðum Sikaplan þakdúkanna gerir Þakplani kleift að bjóða tíu ára ábyrgð á bæði efni og vinnu.
Gott er að heimsækja fyrirtækið eða hafa samband símleiðis eða í gegnum tölvupóst (sjá upplýsingar hér að neðan) til að fræðast nánar um Sikaplan þakdúkana. Þakplan gerir föst verðtilboð sem eru kaupendum að kostnaðarlausu. Óhætt er að segja að þegar dæmið er reiknað til enda þá sé Sikaplan hagkvæmur kostur.
Enn fremur selur og leggur Þakplan Bitumen tjörudúk á þök. Bitumen dúkur notast við sérstök tilefni, til dæmis á viðsnúin þök. Þakplan hefur áralanga reynslu af lagningu tjörudúksins og gæði hans eru framúrskarandi.
Þakplan ehf
Smiðjuvegi 11, 200 Kópavogur
Sími: 564 4680
Netfang: stefan@takplan.is
Þakplan/facebook