fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
FókusKynning

Ísafold, SKÝ og Jörgensen: Þrír ólíkir veitingastaðir – allir einstakir

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 9. apríl 2016 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Center Hotels-keðjan rekur sex hótel í hjarta borgarinnar. Á þremur þeirra er að finna veitingastaði sem allir hafa sinn sérstaka þokka og karakter, eru falleg blóm í flóru miðbæjarlífsins, og gestir þeirra tengja þá lítt við rekstur hótelanna. Þessir staðir eru Ísafold Restaurant, SKÝ Restaurant & Bar og Jörgensen Kitchen & Bar.

Ísafold Restaurant: Vel falinn gimsteinn í miðbænum

Úlfar Uggason yfirkokkur.
Úlfar Uggason yfirkokkur.

Að utan ber lítið á veitingastaðnum Ísafold Restaurant sem er staðsettur á Center Hotels Þingholti, aðeins nokkrum skrefum frá Bankastræti. En þegar inn á staðinn er komið opnast ný veröld þar sem mikið er lagt í einstaka hönnun, sótta í íslenska nátttúru. Starfsfólk staðarins segir að það sé alltaf jafngaman að sjá viðbrögðin hjá fólki þegar það gengur inn því hönnunin og umhverfið koma svo skemmtilega á óvart.

Nýr „Lounge“ matseðill er afar skemmtileg útfærsla á smáréttum. Áhersla er lögð á létt og skemmtilegt umhverfi á stað þar sem gaman er að hittast og deila góðri stund með vinum. Aðstaðan er afar skemmtileg þar sem hægt er að tylla sér í sófasettið eða sitja saman við glæsileg langborð með góðum hópi, panta sér einn til tvo litla rétti og kannski kokteil. Það er sérstaklega vinsælt að kíkja í „pre-djamm“ kokteil áður en haldið er út á lífið.

Ísafold Restaurant býður einnig upp á frábæran matseðil þar sem áherslan er á úrvalsgott íslenskt hráefni. Úlfur Uggason yfirkokkur er í beinu sambandi við birgja og mikið af hráefni er beint frá býli; áhersla er á lífrænt hráefni sem framleitt er á ábyrgan hátt og velferð dýra höfð að leiðarljósi. Gestum er sífellt komið á óvart með skemmtilegri framsetningu og óvæntum réttum.

Við hlið veitingastaðarins er svo Ísafold Spa sem er mjög vinsælt hjá þeim sem eru í rómantískum hugleiðingum og upplagt að slaka á í heitum potti áður en notið er góðs kvöldverðar.

Ísafold Restaurant er opinn alla daga frá kl. 11.30 til miðnættis.
Sími: 595 8535
Heimasíða

SKÝ Restaurant & Bar: Stórkostlegt útsýni – gómsætur léttleiki – sérlagaðir kokteilar

SKÝ Restaurant & Bar er staðsettur á 8. hæð á CenterHotel Arnarhvoli. Á veitingastaðnum er stórkostlegt útsýni yfir Faxaflóa, Esjuna, Hörpu og miðbæ Reykjavíkur. Útsýnið eitt og sér gerir máltíð á SKÝ að einstakri upplifun.

SKÝ er hannaður á nýtískulegan en þó hlýlegan máta og er þar að finna stóra verönd með borðum og stólum sem gestirnir geta nýtt sér þegar veður leyfir. SKÝ býður upp á gott úrval af léttum réttum eins og pasta, samlokum, hamborgurum, kjúklingaréttum og fiski, sem listakokkar staðarins útbúa. Alla daga vikunnar milli 12 og 16 er boðið upp á glæsilegan „brunch“.

SKÝ býður upp á mikið úrval hanastéla. Fjallastélin eru sérútbúnir kokteilar sem nefndir eru eftir fjöllunum sem skarta sínu fegursta fyrir augum gestanna. Þannig er staðurinn tengdur við útsýnið, til dæmis getur fólk notið fegurðar Esjunnar á meðan það gæðir sér á Esju-kokteil.

SKÝ tekur fagnandi á móti hópum, allt að 80 manns, og býður upp á einstaklega góðan hópmatseðil. Er staðurinn til dæmis vinsæll meðal saumaklúbba.

Elva Hjörleifsdóttur yfirþjónn og Kolfinna Birgisdóttir hótelstjóri.
Elva Hjörleifsdóttur yfirþjónn og Kolfinna Birgisdóttir hótelstjóri.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Það er tilvalið að koma við á SKÝ áður en farið er á tónleika í Hörpu en tónlistarhúsið er rétt hjá. Góður matur, sérlagaður kokteill og frábært útsýni – vart er hægt að hugsa sér betri upphitun fyrir menningarviðburð í Hörpu.

SKÝ Restaurant & Bar er opið alla daga frá kl. 11.30 til miðnættis.
Sími: 595 8545
Heimasíða

Jörgensen Kitchen & Bar: Lystisemdir á viðráðanlegu verði

: Viktoría Hrönn Axelsdóttir vaktstjóri og Jóhann Ingi Reynisson matreiðslumeistari.
Jörgensen Kitchen & Bar : Viktoría Hrönn Axelsdóttir vaktstjóri og Jóhann Ingi Reynisson matreiðslumeistari.

Mynd: Brynja

Davíð Kjartansson stýrir nýjasta hóteli Center Hotels-keðjunnar, að Laugavegi 120, en þar er veitingastaðurinn Jörgensen Kitchen & Bar, í gamla Arion banka-húsinu. Gengið er inn á staðinn af götu og fyrir almenning er tengingin við hótelið vart sýnileg. Veitingastaðurinn hefur skemmtilegt og afar persónulegt yfirbragð.

„Við erum með íslenska matargerð með alþjóðlegu ívafi. Maturinn er umfram allt bragðgóður en uppleggið er líka að gera hann skemmtilegan og fallegan. Verðlagið er mjög sanngjarnt en jafnframt lagt mikið upp úr gæðum,“

segir Davíð, en útlit matarins skiptir miklu máli:

„Þetta er umfram allt mjög fallegt og skemmtilegt. Það er bara þannig að maður borðar fimmtíu prósent með augunum. Það vita flestir og þeir sem vita það ekki, þeir upplifa það hjá okkur. Við leggjum mikið upp úr því að upplifun gesta sé eftirminnileg. Það kemur fram í útliti og alls konar smáatriðum sem erfitt er að lýsa, maður þarf að koma á staðinn til að upplifa þetta.“

Davíð segir jafnframt að hver matardiskur sé í raun listaverk. Andrúmsloftið er frjálslegt:

„Hingað koma gjarnan litlir vinahópar og hér má hafa hátt, það má hlæja og hafa gaman. Við erum bara með íslenska tónlist sem er liður í því að hafa stemninguna vinalega.“

Sem fyrr segir er Jörgensen Kitchen & Bar í gömlu bankahúsi og þar af leiðir er vínkjallarinn í gömlu peningageymslu bankans sem hlýtur að teljast einstakt. Vínúrvalið er gott en umfram allt er staðurinn ætlaður öllum:

„Við reynum að verðleggja réttina þannig að flestir eiga að geta leyft sér eitthvað. Annars vegar leggjum við áherslu á A la Carte-matseðil á kvöldin sem er þó þannig úr garði gerður að fólk getur keypt sér tvo rétti í stað eins á sambærilegu veitingahúsi og deilt með sér. Hins vegar er það Street Food þemað okkar, sem hefur heppnast afskaplega vel. Þar erum við með mat frá öllum heimshornum og úrvalið er síbreytilegt. Þetta eru réttir sem fara afskaplega vel með vínglasi eða bjór. Þessir réttir eru í senn afskaplega góðir, þrælskemmtilegir og hræbillegir. Hér er því tilvalið tækifæri fyrir hópa að koma og njóta framúrskarandi veitinga.“

Jörgensen Kitchen & Bar er opið alla daga frá kl. 11.30 til miðnættis.
Sími: 595 8565
Heimasíða

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni