Erikas Kozanovas er önnum kafinn maður. Hann er eini starfsmaður fyrirtækisins Meistara flísalagnir ehf. og sinnir þó stórtækum verkefnum í flísalagningu, til dæmis fyrir Foss Hótel og Grand Hótel. Litla fyrirtækið hans veitir afar fjölbreytta og vandaða þjónustu á sviði gólfefna, veggklæðninga og flísalagningar, hann gerir „allt“ sem rúmast innan þessa sviðs.
Meðal verkefna hjá Meistara flísalögnum eru glæsilegar steinklæðningar, parketlagning, lagning gólfflísa, veggflísar á baðherbergi og margt fleira.
Erikas hefur starfað sem iðnaðarmaður í 15 ár. Hann er frá Litháen en hefur búið á Íslandi í tíu ár og talar ágæta íslensku. Erikas vinnur að mörgum verkefnum fyrir stór fyritæki, til dæmis hótelkeðjur, en hann vinnur einnig gjarnan að verkefnum fyrir heimili, stór og smá.
Meistara flísalagnir ehf. eru til húsa að Kambsvegi 16, 105 Reykjavík. Til að panta vinnu, óska eftir tilboðum eða fá nánari upplýsingar um þjónustuna er best að hringja í Erikas í síma 893-7252.