fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
FókusKynning

Þú kemur ekki að tómum Fjallakofanum

Kynning

Stækkar stöðugt í takt við vaxandi útivistaráhuga

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 21. apríl 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sívaxandi áhugi landsmanna á útivist hvers konar, til dæmis fjallgöngum og fjallaskíðaferðum, hefur ekki farið framhjá neinum. Fjallakofinn er fyrirtæki sem hefur blómstrað í takt við þessa þróun og hefur átt sinn þátt í að gera útivistarferðir þúsunda Íslendinga ánægjulegar: „Þessi stóraaukni útivistaráhugi hefur skilað sér til okkar í aukinni veltu og auknum umsvifum. Við erum með þrjár verslanir sem sérhæfa sig í að sinna þessum sértæka og kröfuharða markaði,“ segir Halldór Hreinsson, eigandi Fjallakofans.

„Fólk vill vandaðan búnað því það vill komast alla leið og aftur heim með þeim hætti að það brosi allan hringinn. En það er ekki skemmtilegt að mæta illa búinn í sína fyrstu fjallaferð á gúmmískónum og hugsa: Hvað er ég búinn að koma mér út í? Slakur búnaður getur drepið viljann og löngunina. Í þessu samhengi erum við afar ánægð með okkar hlutdeild og sem dæmi erum við að selja árlega allt að 4% þjóðarinnar SCARPA-gönguskó en vörumerkið SCARPA hefur verið hér í yfir 30 ár og hefur í dag yfir 50% markaðshlutdeild á Íslandi,“ segir Halldór og bendir á að ánægjan af ferðinni geti alveg staðið og fallið með skónum. Hann segir að vandaðar vörur og fagleg þjónusta og ráðgjöf séu hornsteinar í starfsemi Fjallakofans. SCARPA er ítalskt merki, fjölskyldufyrirtæki á níræðisaldri og er þriðji ættliður fjölskyldunnar við stjórn núna.

Mynd: Þormar Vignir Gunnnarsson

Tollalækkun skilar sér að fullu í lægra verði

„Sterkt, vandað og uppfyllir þær kröfur og væntingar sem viðskiptavinurinn hefur,“ segir Halldór að séu einkenni á þeim búnaði sem Fjallakofinn leitast við að hafa til sölu. Annað dæmi um það eru hin þekktu og vinsælu útivistarföt Marmot, en þar er um að ræða afar traust bandarískt fyrirtæki sem var stofnað árið 1974.

„Marmot merkið er orðið mjög áberandi meðal leiðsögumanna og er flaggskipið okkar í útivistarfatnaði. Þar hefur okkur jafnframt tekist að bjóða mjög samkeppnishæft verð miðað við Evrópu en tollalækkanirnar hafa valdið því að þessi fatnaður hefur lækkað um 12–17% í verði hjá okkur,“ segir Halldór en Fjallakofinn hefur kappkostað að láta tollalækkanir skila sér að fullu í verðlagið. Segir hann verðlag í verslunum Fjallakofans vera það samkeppnishæft að þar sé góð sala til erlendra ferðamanna eins og til dæmis Norðurlandabúa, að ekki sé minnst á Kínverja sem kaupi mikið af svona hágæðafatnaði.

Reynsla og fagþekking starfsfólks

Halldór segir að vandað og vel þjálfað starfsfólk sé annar lykill að velgengni Fjallakofans. Starfsfólk sé sjálft mjög virkt í fjallaferðum og annarri útivist og sé með afar mikla þekkingu á þessu útbreidda áhugamáli landans.
Sjálfur hefur hann verið í þessum bransa í yfir 30 ár og finnst alltaf jafn gaman að þjóna viðskiptavinum sínum enda lítur hann á þá sem sína vinnuveitendur og reynir því að standa sig með sínu starfsfólki eins vel og hægt er á hverjum degi.

Þrátt fyrir að það hafi orðið miklar breytingar í framleiðslu þess búnaðar sem menn nota til fjallaferða þá vill Halldór benda á þá staðreynd að það sem skipti mestu máli hafi ekkert breyst:

„Það er að bera virðingu fyrir fjallinu sem þú ætlar að ganga á og náttúru þess, þá líður þér vel á toppnum!“
Sem fyrr segir eru verslanir Fjallakofans þrjár: Í Kringlunni 7, á Laugavegi 11 og Reykjavíkurvegi 64. Upplýsingar um afgreiðslutíma þeirra, ítarlegar upplýsingar um vörur og netverslun er að finna á ágætu vefsvæði Fjallakofans, fjallakofinn.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni