Rafport hefur sameinað starfsemi sína á einn og sama staðinn í nýendurgerðu húsnæði að Auðbrekku 9-11 í Kópavogi. Nýja húsnæðið er rúmgott, nýuppgert og glæsilegt í alla staði. Rafport hefur verið starfandi frá árinu 1985 en fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á ýmsum rafbúnaði. Á meðal birgja Rafports eru heimsþekkt vörumerki sem þekkt eru fyrir góðar vörur. Rafport er með allar lausnir þegar að kemur að raflögnum fyrir heimili og fyrirtæki, allt frá byrjun til enda.
Ef að þú ert að byggja eða breyta, þá endilega komdu í heimsókn til okkar og kynntu þér allt það nýjasta sem í boði er, við tökum vel á móti þér.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Rafports. Einnig er afskaplega gaman að heimsækja verslunina að Auðbrekku 9-11 enda leggur Rafport mikið upp úr góðri og persónulegri þjónustu við viðskiptavini. Rafport hefur útbúið lítið kaffihús (Kaffi Port) í sýningarsal sínum þar sem viðskiptavinum býðst að gæða sér á rjúkandi kaffibolla með frábæru útsýni yfir borgina. Við hlökkum til að sjá þig.