Uppstopparinn með fituga hárið sem stendur allt of nálægt þér – og fleiri góðar týpur!
Ákveðin persónueinkenni eru meira „krípí“ en önnur, og það sem er merkilegt er að flestir virðast sammála um hvaða persónueinkenni þetta eru.
Í nýrri rannsókn sem birt var í tímaritinu New Ideas in Psychology, tóku 1334 einstaklingar þátt í könnun. Helstu niðurstöður voru eftirfarandi:
Við erum líklegri til að upplifa karla sem „krípí“
Konur eru líklegri til að upplifa kynferðislega ógn frá „krípí“ manneskju
Óútreiknanleiki er mikilvægur þáttur í að við upplifum fólk „krípí“
Sumar starfsgreinar og áhugamál virka meira „krípí“ en önnur
Í rannsókninni kemur fram að hún er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Vísindafólk hefur sem sagt aldrei áður reynt að skilgreina á þennan hátt hvað það er nákvæmlega að vera „krípí“. Niðurstöðurnar eru túlkaðar meðal annars á þann hátt að þeir sem við upplifum sem „krípí“ framkalli vanlíðan hjá okkur vegna þess að við vitum ekki hverju við eigum að búast við af þeim.
Að standa of nálægt einhverjum
Fitugt hár
Einkennilegt bros
Útstæð augu
Langir fingur
Áberandi baugar undir augum
Einkennilegur klæðaburður
Að sleikja varir sínar í tíma og ótíma
Hlátur á einkennilegum augnablikum
Að tala of mikið um ákveðið efni, sérstaklega kynlíf
Að sýna óvelkominn kynferðislegan áhuga
Að biðja um að fá að taka af þér mynd
Að safna hlutum, til dæmis dúkkum, skordýrum, eða naglaafklippum
Að hafa áhuga á að horfa á eða skoða – til dæmis fuglaskoðun eða ljósmyndun
Trúður
Uppstoppari
Eigandi kynlífsleiktækjaverslunar
Útfararstjóri
Leigubílstjóri
Atvinnulaus
Prestur
Húsvörður
Ruslatæknir
Vörður
Rithöfundur
Leikari
Byggingavinnumaður
Forritari
Starfsmaður í kaffiteríu
Fjármálaráðgjafi
Læknir
Háskólakennari
Bóndi
Veðurfræðingur
Kennari