Fyrirmyndarframleiðandi einfaldra og vandaðra vinnuhjóla
Jóhannes Bjarnason er sviðsstjóri verslunarsviðs hjá Jötni og hann bendir á þá staðreynd að sala fjórhjóla fari smám saman vaxandi: „Við hjá Jötni leggjum metnað okkar í að vera með á boðstólum vönduð og góð fjórhjól og því bjóðum við Goes. Okkur hefur tekist að halda þeim á hagstæðu verði og munum geta veitt afbragðs þjónustu á fjórhjólunum.”
„Forsaga þess að við hjá Jötni kusum að hefja samstarf við Goes byggist á því að við fórum að fylgjast með þessum hjólum hjá félögum okkar í TBS í Danmörku fyrir nokkrum árum og höfum fylgst með þróuninni hjá þeim síðan. Í gegnum tíðina hafa þeir selt fjölda hjóla og og reynslan af þeim er mjög góð. Því erum við þess fullvissir að með Goes séum við komnir með vöru þar sem saman fara gæði og hagstætt verð,“
segir Jóhannes.
Goes var stofnað í Frakklandi árið 2005 af nokkrum fyrrverandi lykilstjórnendum Evrópudeildar Bombardier en frá fyrsta degi hefur markmiðið verið sett á framleiðslu einfaldra og vandaðra vinnuhjóla.
Í dag eru hjólin seld í 15 Evrópulöndum og er framleiðslan í allt um 4.000 hjól á ári. Framleiðslan fer fram í Kína, eins og sífellt verður algengara, en franskir starfsmenn Goes vinna einnig í verksmiðjunni og sinna víðtæku gæðaeftirliti með framleiðslunni.
Að sögn Jóhannesar er franska fyrirtækið Goes með stóran varahlutalager í París sem tryggir hratt og öruggt aðgengi að varahlutum og þjónustuupplýsingum.
„Nýjungin „Lifeguard“ (öryggisbogi) er búnaður sem hefur verið tekið fagnandi á Íslandi en þetta öryggistæki hlífir ökumanni og farþega ef velta á sér stað en öryggisboginn dreifir þyngdinni hvort sínum megin við ökumanninn. Öryggisboginn er hannaður fyrir fjórhjól þyngri en 350 kíló og þolir meira en 1.200 kílóa þunga“,
segir Jóhannes að lokum og hvetur áhugasama til þess að skoða heimasíðu Jötuns.
Þess ber að geta að Jötunn er með verslanir á Selfossi, Akureyri og Egilsstöðum.
Jötunn vélar ehf. Austurvegur 69,Selfoss. Sími: 4800 – 400.