Sjálflokandi leikskólahlið – Hljóðlausar girðingar fyrir íþróttavelli
Þórður Antonsson, framkvæmdastjóri Öryggisgirðinga ehf., segir það lykilatriði í rekstrinum að vera með vandaða framleiðendur á sínum snærum.
„Við erum um þessar mundir að kynna nýjung sem er sjálflokandi leikskólahlið til þess að auka öryggi barnanna okkar.“
Hljóðlausar girðingar fyrir íþróttavelli
Öryggisgirðingar ehf. er líka með umboð fyrir hollenska fyrirtækið Deciwand og enska fyrirtækið Zaun sem framleiðir grindur hvort sem er eftir máli eða hönnun og eru einnig með svokallaðar hljóðlausar girðingar – sem henta einstaklega vel fyrir íþróttavelli.
Öryggisgirðingar ehf. sá um girðingu nýja Framvallarins í Úlfarsárdal og einnig hlið hjá Eimskipum (sjá myndir).
„Við erum mjög ánægðir með vörurnar frá ítalska fyrirtækinu CAME sem Öryggisgirðingar ehf. er með umboð fyrir en þeir eru leiðandi framleiðandi í hliðbúnaði, bílastæðahliðum og aðgangsstýringu. Að auki er fyrirtækið með hússtjórnunarkerfi og þjófavarnarbúnað.“
Fjölbreytt járnsmíðavinna hjá Öryggisgirðingum
„Öryggisgirðingar ehf. býður einnig upp á fjölbreytta járnsmíðavinnu. Hjá okkur er hægt að láta smíða hliðin, handriðin og stigana. Auk þess fást ýmsir íhlutir til hliðsmíða, læsingar og lamir.“
Öryggisgirðingar, Suðurhraun 2, 210 Garðabær. Sími: 544-4222, fax: 544-4221. Heimasíða: www.girding.is