VELFAC gluggar: „Einstök verkfræðileg hönnun og vönduð smíði“
Faris ehf. er innflutningsfyrirtæki á sviði byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar sem stofnað var árið 2009. Sigurður Magnússon framkvæmdastjóri segist leggja mikla áherslu á að bjóða einungis gæðavörur samkvæmt reglugerðum. „Stefna okkar er að veita viðskiptavinum eftirsóknarverða þjónustu og áreiðanlegar lausnir. Markmiðið er meðal annars að koma til móts við þarfir leikra sem lærðra á íslenskum byggingamarkaði með því að vera stöðugt að bæta þjónustu okkar og auka vöruúrvalið,“ segir Sigurður. „Við erum meðvitaðir um mikilvægi umhverfisverndar og veljum því að bjóða vörur frá birgjum sem vinna stöðugt að umhverfisvernd með framleiðslu sinni,“ bætir hann við.
„Í nýjum sýningarsal okkar að Gylfaflöt 3 getur þú skoðað VELFAC glugga af ýmsum stærðum og gerðum. Það er því um að gera að koma og fá sér rjúkandi nýmalað kaffi, skoða úrvalið og þiggja ráðgjöf hjá okkur,“ segir Sigurður. „Ef þú sendir okkur teikningar eða aðrar upplýsingar á netfangið faris@faris.is gerum við þér tilboð þér að kostnaðarlausu. Þú getur einnig haft samband við okkur og sent inn teikningar,“ bætir hann við.
„VELFAC gluggar eru hágæða nútímalegir gluggar á sanngjörnu verði,“ segir Sigurður. „Einstök verkfræðileg hönnun og vönduð smíði VELFAC glugga setur þá í fremstu röð þegar kemur að styrk og endingu, kröfum um orkusparnað og hámarks nýtingu dagsbirtunnar,“ segir hann í framhaldinu. VELFAC gluggar eru sérsmíðaðir samkvæmt þínum óskum. Allt frá árinu 1952 hafa hönnuðir og verkfræðingar VELFAC unnið að þróun glugganna til að mæta síauknum kröfum um gæði, endingu og virkni. „Gluggarnir eru litaðir eftir óskum viðskiptavina og eru VELFAC gluggarnir með fimm ára ábyrgð,“ segir Sigurður.
„Að velja glugga til framtíðar er mikilvæg fjárfesting. Þess vegna borgar sig að vanda valið og skoða alla kosti með tilliti til mestu gæða, flottrar hönnunar, orkusparnaðar og góðrar endingar,“ segir Sigurður.
VELFAC 200 Energy er alveg ný lausn með þreföldu gleri, sem færir U-gildið á standard glugga niður í 0,5 og gerir gluggann þar með gríðarlega einangrandi og orkusparandi. „Þetta er fáanlegt í öllum VELFAC gerðum: VELFAC 200, RIBo og Velfac Classic gerðum og eru allir með einstöku svífandi útliti VELFAC hönnunarinnar,“ segir Sigurður. Fjórða tegund VELFAC glugganna sem Sigurður býður upp á er nýjungin VELFAC Edge sem er með kanti og eru þeir hentugir fyrir byggingar frá 1960 til 2000. „Með VELFAC Edge færðu nýja vöru með 30 ára reynslu. Endurnýjun bygginga frá 1960 til 2000 gerir kröfu um bæði útlit og getu. Með VELFAC Edge færðu glugga með tvöföldu/þreföldu gleri, sem henta vel fyrir byggingar þess tíma. Sterkbyggð hönnun glugganna hefur árlega verið þróuð og betrumbætt frá árinu 1985. Með VELFAC gluggum sameinar þú alla þessa kosti,“ segir Sigurður. Opnunartími skrifstofunnar er frá kl.10.00 til 17.00 mánudaga til föstudaga.
Faris ehf
Gylfaflöt 3, 112 Reykjavík l Sími 571 0910
www.faris.is