fbpx
Sunnudagur 24.nóvember 2024
FókusKynning

Bifreiðaverkstæði Kópavogs sérhæft í viðgerðum á Toyota

Kynning

Áralöng reynsla og mikil þekking

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 23. mars 2016 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bifreiðaverkstæði Kópavogs sérhæfir sig í viðgerðum á Toyota-bifreiðum en þar er samt sem áður gert við allar tegundir bifreiða. Auðunn Ásberg Gunnarsson bifvélavirkjameistari stofnaði fyrirtækið í mars 1995 en hefur verið mörg ár í bransanum. „Við erum hér á Smiðjuvegi 2 í 180 fermetra húsnæði með sjö lyftur og náum því að anna mikilli eftirspurn,“ segir Auðunn. „Auk þess hjólastillum við bifreiðar og erum með smurþjónustu,“ bætir hann við. „Hjá mér starfa sex bifvélavirkjar og eiginkona mín, Sólbjörg Linda Reynisdóttir, ásamt sendli sem sér um að ná í varahluti og aka viðskiptavinum sem skilja bílana sína eftir hjá okkur,“ segir hann í framhaldinu.

Áralöng reynsla og mikil þekking

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Ég hef starfað við þetta í mörg ár, eins lengi og ég man eftir mér,“ segir Auðunn. Tveggja ára var hann farinn að gera við. „Þegar ég var tveggja ára fékk ég rauðan dúkkuvagn að gjöf og dundaði mér við að taka dekkin undan honum og setja á aftur. Þannig byrjaði það,“ segir hann. „Það er víst óhætt að segja að snemma beygist krókurinn. Ég er náttúrlega búinn að vera að gera við síðan ég var 12 ára, þegar ég byrjaði í skellinöðrunum og má kannski segja að ástríðan hafi kviknað fyrir alvöru þar,“ segir hann í framhaldinu. Auðunn lærði svo bifvélavirkjun hjá Lykli á Reyðarfirði og kláraði námið hjá Dráttarbrautinni í Neskaupstað. Hann rak fyrirtækið Réttingar og sprautun á Reyðarfirði sumarið eftir námslok, ók vörubíl um nokkurra ára skeið, stundaði sjómennsku og sitthvað fleira áður en hann stofnaði Bílaverkstæði Kópavogs árið 1995.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Eru á Facebook

Verkstæðið er opið frá mánudegi til fimmtudags frá kl. 08.00 til 17.00 og föstudaga frá kl. 08.00 til 16.00. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að hringja í þjónustufulltrúa fyrirtækisins í síma 587-1350 eða á Facebook síðu verkstæðisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni