fbpx
Sunnudagur 24.nóvember 2024
FókusKynning

Útilegumaðurinn – þar sem ferðalagið hefst!

Kynning

Ferðavagnar sem veita ómælda ánægju

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 22. mars 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er sannarlega að koma vorhugur í vetrarþreytta Íslendinga og margir farnir að huga að sumrinu og öllum þeim möguleikum sem það býður upp á hvað varðar heilnæma útiveru með fjölskyldu og vinum. Þá er einmitt tilvalið að heimsækja verslun Útilegumannsins á Korputorgi, fá sér kaffisopa og skoða úrvalið í hinum glæsilega sýningarsal sem er einir 1.700 fermetrar að stærð. Útilegumanninum var tekið opnum örmum af viðskiptavinum þegar í upphafi og er ekkert lát á vinsældum verslunarinnar.

Spennandi ferða- og útivistarverslun

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Að sögn Þórðar Kristinssonar sölustjóra og Hafdísar Elínar Helgadóttur framkvæmdastjóra er um að ræða ferða- og útivistarverslun sem leggur ríka áherslu á að bjóða mjög góða vöru.

„Verðlag hjá okkur er líka hagstætt og við veitum persónulega, ábyrga og góða þjónustu. Helstu vörurnar sem við bjóðum upp á og erum umboðsaðilar fyrir eru eftirfarandi: Dethleffs-hjólhýsi og -húsbílar, Knaus-hjólhýsi og -húsbílar, Weinsberg-hjólhýsi og -húsbílar, LMC-, Tabbert-, Polar- og T@b-hjólhýsi. Einnig er Útilegumaðurinn með umboð fyrir Rockwook- og Palomino-fellihýsi auk umboða fyrir Combi Camp- og Ægistjaldvagna. Erum með Dometic-skyggni, Outwell-tjöld og ferðabúnað og fjölmargt fleira. Viðskiptavinir okkar í gegnum tíðina hafa haft orð á því hversu spennandi vöruúrvalið sé hjá okkur og ánægðir viðskiptavinir eru að sjálfsögðu okkar bestu meðmæli,“ segja þau.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Ferðavagnar sem veita ómælda ánægju

„Við vitum sem er að ferðavagnarnir okkar veita fólki ómælda ánægju í frítíma þess, hvort sem um er að ræða ferðalög hérlendis eða erlendis. Við bendum viðskiptavinum okkar ávallt á mikilvægi þess að læra vel öll atriði varðandi notkun vagnanna og fara eftir notkunarleiðbeiningum í sérstakri handbók sem þeir fá hjá Útilegumanninum. Við höfum einnig sett í handbókina ýmsar hagnýtar upplýsingar varðandi eitt og annað sem tengist ferðalögum með hjólhýsi. Mikilvægt er að kynna sér þá þætti sem allra best. Útilegumaðurinn heldur úti heimasíðunni www.utilegumadurinn.is en hún hefur verið vettvangur upplýsingastreymis fyrirtækisins um vörur okkar og þjónustu. Sífellt eru unnar á síðunni einhverjar endurbætur og breytingar og hvetjum við ykkur til að líta inn á hana sem oftast – því jafnframt því að kynna vörur og þjónustu fyrirtækisins þá er hún líka vettvangur frétta og nýjunga sem geta gagnast þeim sem eiga hjólhýsi og húsbíl eða hafa í hyggju að fjárfesta í nýjum ferðavagni.“

Þórður og Hafdís benda á að á heimasíðunni sé einnig að finna myndskreytta bæklinga með öllum helstu upplýsingum um vörurnar sem þau eru með á boðstólum. Reglulega eru einnig sett inn bæði tilboð og fréttir á
Facebook síðunni fyrirtækisins.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Ný hjólhýsi frá 2.990.000 kr.

„Við erum í vorstuði þessa dagana og erum með ýmis tilboð af því tilefni. Við erum t.d. með ný hjólhýsi frá 2.990.000 kr. Auk þess er Útilegumaðurinn með tilboð núna af nokkrum gerðum af tjöldum; eins og 35% afslátt af tveimur stórum fjölskyldutjöldum frá Outwell og fermingartilboð á tveimur minni tjöldum – sem eru með 50% afslætti. Við hvetjum áhugasama til þess að hafa samband við ráðgjafa Útilegumannsins ef þá vantar upplýsingar og ráðgjöf um hvaðeina er varðar hjólhýsi og húsbíla,“ segja Þórður og Hafdís að lokum og óska öllum gleðilegs ferðasumars.

Útilegumaðurinn ehf.
Korputorgi
112 Reykjavík
Sími: 551-5600
Mánudagur–föstudagur opið kl. 10.00–18.00
Opið um helgar kl. 12.00–16.00
Netfang: sala@utilegumadurinn.is
www.utilegumadurinn.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni