Mikilvægt að panta þjónustu tímanlega
Bræðurnir Hjörleifur og Róbert eru eigendur Garðaþjónustu Íslands, sem var stofnuð í febrúar árið 2008. Að sögn Hjörleifs er þeirra sérsvið alhliða garðaþjónusta. „Við stofnuðum fyrirtækið í hruninu, þegar stærri framkvæmdir urðu sjaldgæfari ; sem sagt hellulögn og smíðavinna. Við urðum að bregðast við því og vera í stakk búnir til að taka það sem bauðst hverju sinni. Þess vegna hefur þetta þróast þannig að við erum orðnir vel tækjum búnir í allt sem tengist garðinum, frá beðahreinsunum og upp í allsherjar lóðabreytingar,“ segir Hjörleifur. „Við erum að helluleggja, sjáum um smíðavinnu og erum með öfluga viðhaldsþjónustu; við sinnum snjómokstri og hálkueyðingu á veturna. Auk þess sjáum við um klippingar, gróðursetningar og garðslátt, séu dæmi nefnd, fyrir húsfélög, einstaklinga og fyrirtæki. Við erum mjög vel tækjum búnir í alla fyrrnefnda þjónustu og gerum allt frá A til Ö,“ bætir hann við.
Að sögn Hjörleifs er mjög mikið að gera og nóg af verkefnum. Mikil fjölgun hefur orðið í stærri verkefnum. „Í fyrra náðum við til dæmis ekki að sinna öllum fyrirspurnum út af sprengingu sem varð á markaðnum. Það er staða sem við höfðum ekki upplifað áður. Eftirspurnin hefur aukist gríðarlega og því er mikilvægt ef fólk er að hugsa um nýframkvæmdir og að taka garðana sína í gegn, að skipuleggja fram í tímann og fá tilboð og ráðgjöf tímanlega,“ segir Hjörleifur.
Til að panta þjónustu eða skoðun er best að hafa samband við eigendur í síma 844-6547 eða 866-9767. Best er að hafa samband milli kl. 08.00–17.00 alla virka daga.
„Við höfum upplifað freistingar á leið okkar upp á við; að stækka fyrirtækið og þenjast út, en við höfum ekki áhuga á því,“ segir Hjörleifur. „Það sem við viljum er að geta verið í góðu sambandi við viðskiptavini okkar, staðið við orð okkar og að gæði vinnunnar séu okkur til sóma. Þess vegna höfum við lagt áherslu á að missa aldrei yfirsýn á starfsemina,“ segir Hjörleifur.
Til þess fá meiri upplýsingar um fyrirtækið er hægt að fara á www.garda.is eða Facebook síðu fyrirtækisins.