„Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og lægra verð.“
Eignarekstur sérhæfir sig í persónulegri þjónustu og veitir faglega ráðgjöf í rekstri hjá húsfélögum. Markmið fyrirtækisins er að reka húsfélög á hagkvæman hátt með þarfir og væntingar húsfélagsins að leiðarljósi.
Eigandi Eignareksturs er Ragnhildur Guðrún Pálsdóttir framkvæmdastjóri. Páll Haraldsson sér um bókhaldsþjónustu Eignareksturs og Haraldur Rafn Pálsson er lögfræðingur fyrirtækisins. Þríeykið býr að reynslu í rekstri húsfélaga og hefur áunnið sér traust viðskiptavina sinna:
„Við leggjum áherslu á að vera í liprum og góðum samskiptum við viðskiptavini okkar,“ segja þau.
„Það er nokkuð algengt að fólk hafi lítinn sem engan tíma til þess að sinna hagsmunum húsfélaga en þar komum við til skjalanna. Við aðstoðum m.a. við að lækka húsgjöldin og leggjum til ráðgjöf við hæfi.
Það er okkar sérstaða að vera persónuleg og sjá um allt fyrir húsfélögin. Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og lægra verð.“
„Við hjá Eignarekstri sérsníðum þjónustu okkar að hverju og einu húsfélagi. Húsfélög gera vissulega mismunandi kröfur og hafa ólíkar þarfir. Við berum hag húsfélagsins fyrir brjósti og erum með lausnir á lægri kostnaðarliðum á aðkeyptri þjónustu fyrir húsfélög. Við komum ef þess er óskað og kynnum okkar starfsemina, ykkur að kostnaðarlausu.“
Eignarekstur
Sími: 612-5005
eignarekstur@eignarekstur.is
www.eignarekstur.is