Ekkert of stórt eða of lítið
Fyrirtækið Sendó ehf. var stofnað af eigendum þess, þeim Erni Steinar Arnarsyni og Lindu Dröfn Jónsdóttur, í ágúst 2006. Sendó er byggt á áratugareynslu Arnar í flutningabransanum sem hann hefur starfað við síðan árið 1991. Það er því óhætt að segja að hér sé reynslu- og þekkingarmikið flutningafyrirtæki á ferð.
„Þetta byrjaði allt með einum sendibíl,“ segir Örn. „Þetta var síðan fljótt að vinda upp á sig og í dag rekur Sendó um átta bíla alls auk þess að vera með ýmis önnur tæki á boðstólum.
Örn leggur áherslu á að aðalmarkmið Sendó sé að bjóða alhliða og vandaða flutningaþjónustu fyrir jafnt einstaklinga sem fyrirtæki. „Við leggjum okkur fram við að vera með persónulega og góða þjónustu þar sem áreiðanleiki og öryggi er í fyrirrúmi. Við bjóðum upp á allar stærðir af bílum auk þess sem Sendó er með „malar-trailer“ og ýmislegt fleira. Við segjum gjarnan að ekkert er of stórt eða lítið fyrir okkur og stöndum við það.“
Sendó sér um flutninga á smápökkum, húsgögnum og búslóðum, bæði virka daga, sem og um kvöld og helgar.
Einnig eru í boði heildarflutningslausnir fyrirtækja (ásamt pökkun), flutningur á búslóðum, píanóum/flyglum (til staðar er sérhæfður búnaður til þess), peningaskápum, bátum, þungavinnuvélum og ýmsu fleira.
Láttu vanan og öruggan fagmann sjá um að flytja fyrir þig – það margborgar sig.
Sendó ehf, Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík.
Sími: 551-1010