fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
FókusKynning

Steikhúsið: Sérhæfing í safaríkum steikum

Kynning

Black Angus-steikurnar – þær bestu í bænum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 11. mars 2016 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Steikhúsið var opnað í júní 2012 og frá þeim tíma leituðu eigendur staðarins logandi ljósi að nautakjöti sem myndi uppfylla ströngustu gæðakröfur og falla óaðfinnanlega að vinnslu- og eldunaraðferðum þeirra.
Að sögn Atla Más Sigurðssonar veitingastjóra lauk ríflega tveggja ára leit hjá fyrirtækinu Creekstone Farms í Bandaríkjunum. „Þar með hófst tími ánægjulegra uppgötvana hjá gestum okkar sem hafa notið góðs af þessu dýrindis kjöti.“

Black Angus-steikurnar – þær bestu í bænum

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

„Black Angus-steikurnar okkar eru einfaldlega úr úrvals hráefni og njóta mikilla vinsælda. Það má segja að við sérhæfum okkur í þessari steikargerð. Við erum með steikurnar í hægmeyrnunarskáp þar sem þær þroskast afbragðs vel, meyrna og bragðast frábærlega enda innihalda þær bæði mikla fitu og mikið bragð.
Sú allra vinsælasta er nautalund sem er 200 grömm en steikhúsveislan okkar inniheldur einmitt hana og hefur fallið einkar vel í kramið hjá viðskiptavinum okkar sem eru á aldrinum 25–55 ára. Við erum með fjölbreytt úrval af nautasteikum til að mæta fjölbreyttum smekk gesta okkar.
Bæði Íslendingar sem og erlendir ferðamenn njóta veitinga hjá okkur en þó eru Íslendingar í meirihluta um helgar.“

Gómsætar og spennandi nýjungar í næstu viku

Þegar Atli er inntur eftir hvers konar steikingu hann mæli með er því auðsvarað:
„Að mínu mati ætti að steikja allt nautakjöt „medium rare“, hrossalund „rare“, hrefnu „rare“, lambafillet „medium“
og lambaprime „medium well“.

Mynd: Þormar Vignir Gunnarsson

Við kynnum til leiks nýjungar á matseðli okkar í næstu viku; rétti eins og skötusels-kinnar í „steamy-bun“ (nokkurs konar lauflétt brauðbolla), bleikju með reyktri hollandaise-sósu og broccolini (sem er fíngert spergilkál með lengri og grennri stilk) auk fjölda annarra gómsætra rétta,“ segir Atli og lofar spennandi nýjungum.

Hægt er að skoða matseðil og panta borð á heimasíðunni www.steik.is

Steikhúsið, Tryggvagata 4–6, 101 Reykjavík
Sími: 561-1111
Netfang: steik@steik.is

Opnunartími:
Sunnudaga–fimmtudaga kl. 17.00 til 22.00
Föstudaga–laugardaga kl.17.00 til 23.00

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“