fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
FókusKynning

Umhverfisvænir plastpokar úr plasti!

Kynning

– Sérstakt íblöndunarefni hraðar niðurbroti

Berglind Bergmann
Fimmtudaginn 10. mars 2016 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umhverfismál hafa mikið verið til umræðu undanfarið og talsvert hefur verið rætt um skaðsemi plasts í því sambandi. Eins og flestir vita er plast afar endingargott efni sem hefur þann ókost í för með sér að það er mjög lengi að eyðast ef fólk losar sig við það á óábyrgan hátt. Þetta hefur haft afar slæmar afleiðingar bæði fyrir náttúruna og dýraríkið.

Ýmsar umdeildar lausnir

Ýmsar lausnir hafa komið fram á sjónarsviðið. Til dæmis hefur fólki hefur verið ráðlagt nota sama pokann oft, eða nota poka sem gerður úr maís. Þær lausnir eru þó ekki gallalausar. Sé sami poki notaður of oft undir matvæli getur myndast í honum sveppagróður sem veldur myglu sem er þá fljót að festa rætur í matnum sem geymdur er í pokanum.

Vafi leikur á um hversu umhverfisvænn poki er sem gerður er úr maís. Þar hefur verið talið til að talsvert landrými fer í að rækta maís sem annars hefði verið hægt að nota til manneldis. Við ræktunina er einnig notað mikið af spilliefnum svo sem olíu, skordýraeitur og fleira. Einnig hefur verið bent á að maís pokar eru lélegri en venjulegir pokar og að við niðurbrot losa þeir meira af koltvísýringi en venjulegir plastpokar. Það sem verra er, að þegar maís poki er urðaður þá umbreytist hann tiltölulega hratt í metan, sem er u.þ.b. 20 sinnum öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur.

Hvað er til ráða?

Það er einn valkostur sem lítið hefur verið rætt um. Hægt er að fá umhverfisvæna plastpoka (oxo-biodegradable plastic bags).Umhverfisvænir plastpokar eru framleiddir á nákvæmlega sama hátt og venjulegir plastpokar nema að bætt er við sérstöku íblöndunarefni sem kallast d2w. Við það breytist efnisuppbygging pokana sem veldur því að niðurbrot gengur mun hraðar fyrir sig. Umhverfisvænu pokarnir breytist með tímanum þegar þeir komast í samband við súrefni og brotna niður á sama hátt og laufblöð, án skaða fyrir náttúruna. Niðurbrot gengur enn hraðar fyrir sig þegar pokarnir komast í tæri við hita eða sól. Þar að auki er hægt stjórna líftíma plastpokans eftir því hversu mikið af íblöndunarefninu er notað.

Umhverfisvænir plastpokar eru því óumdeilanlega betri kostur en venjulegir plastpokar. Það er í raun mjög sérstakt hve lítið hefur verið rætt um umhverfisvæna plastpoka hér á landi, þar sem þeir hafa verið í þróun í nokkur ár og eru komnir í framleiðslu í dag. Í stað þess að banna notkun plastpoka væri skynsamlegra að hvetja plastfyrirtæki til að nota d2w íblöndunarefni. En þrátt fyrir litla umræðu um umhverfisvæna plastpoka á Íslandi þá hafa fjölmörg ábyrg fyrirtæki erlendis hafið notkun á þeim. Meðal stærri fyrirtækja sem nota umhverfisvæna plastpoka með d2w eru:

Umhverfisvænir plastpokar til sölu á Íslandi

Plast miðar og tæki ehf. (Pmt) hefur nú hafið sölu á umhverfisvænum plastpokum í samstarfi við Symphony Environmental. Pmt býður uppá alls kyns gerðir af umhverfisvænum plastpokum. Í vefverslun Pmt er hægt að fá staðlaða poka í ýmsum stærðum, hvort heldur sem geyma á matvæli eða henda rusli. Hægt að fá séráprentaða poka fyrir verslanir, bæði fyrir matvöruverslanir og sérvöruverslanir. Íslensk plastfyrirtæki sem vilja gerast umhverfisvænni geta jafnframt fengið hjá okkur íblöndunarefni.

Pmt er staðsett á Krókhálsi 1, 110 Reykjavík, sími: 567-8888, netfang: pmt@pmt.is. Opnunartími verslunar er 8-17 alla virka daga.

Hægt er að smella hér til að fara á heimasíðu Pmt og sjá úval af umhverfisvænum plastpokum sem hægt er að versla í netverslun fyrirtækisins.

Smelltu hér til að heimsækja facebook síðu Pmt

Umhvefisvænu pokarnir er framleiddir í ýmsum gerðum og stærðum líkt og sjá má í myndum hér fyrir neðan..

Umhverfisvænir pokar 228x355mm, 100stk/rl.
Umhverfisvænir pokar 228x355mm, 100stk/rl.
Umhverfisvænir pokar 177x228mm, 200stk/rl.
Umhverfisvænir pokar 177x228mm, 200stk/rl.
Umhverfisvænir pokar 610×730+60mm, 15stk/rl.
Umhverfisvænir pokar 610×730+60mm, 15stk/rl.
Umhverfisvænir sekkir 1190x1400mm, 5stk.
Umhverfisvænir sekkir 1190x1400mm, 5stk.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“