fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024
FókusKynning

Cargo: Útleiga á sendibílum og kassabílum með lyftum

Kynning

Bjóða einnig trillur og brettatjakka til að auðvelda flutningana

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 10. mars 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cargo sendibílaleiga sérhæfir sig í útleigu á sendi- og kassabílum með lyftu til flutninga á búslóðum og vörum. Þar leigir þú þann bíl sem hentar þínum flutningum, ekur sjálfur/sjálf og sparar því umtalsverðan kostnað.

Bílafloti til búslóðaflutninga

Gunnar Haraldsson, eigandi Cargo sendibíla, segir bílaflota fyrirtækisins samanstanda af þremur bílastærðum. „Í 1.100 kílóa flokkunum erum við með minni sendibíla sem hafa alveg einstaklega góða aksturseiginleika og eyða litlu eldsneyti.1.200 kílóa flokkurinn er kassabílar með lyftu sem eru einstaklega góður kostur til flutninga á stórum og meðalstórum búslóðum. Á þessa bíla þarf ekki meirapróf og eru þeir sparneytnir. Stærsti bíllinn okkar er Benz Atego, kassabíll með lyftu, sem hefur 2.500 kílóa burðargetu og lyftigetan er 750 kíló,“ segir hann. „Þessi bíll er frábær ef um þyngri flutninga er að ræða og hentar einstaklega vel til flutninga á búslóðum út á land. Á þennan bíl þarf meirapróf eða hafa tekið ökupróf fyrir 1988.“

Trillur og brettatjakkar

„Við erum síðan einnig með hjálpartæki til þess að auðvelda fólki flutningana, eins og sekkjatrillu, sem er með burðargetu upp að 200 kílóum. Þetta er létt handtrilla með föstum palli. Svo er einnig hægt að leigja tröpputrillu sem flytur þunga hluti bæði upp og niður stiga. Báðar trillurnar eru íslensk framleiðsla. Trillurnar reynast mjög góðar til þess að flytja t.d. þvottavélar og ísskápa úr stað. Við erum líka með brettatjakka ef um er að ræða vörur á brettum eða sterk bönd til þess að festa vörurnar í bílunum.“

Að leigja sendibíl

Að sögn Gunnars þarf viðskiptavinur sem hyggst leigja sendibíl að framvísa ökuskírteini og kreditkorti sem tryggingu fyrir leigu sendibifreiðarinnar. „Vert er að taka fram að leigutaki þarf ekki að vera með meirapróf til að leigja sendibíl með burðargetu 1.200 kíló og undir. Leigutaki leigir sendibílinn fullan af eldsneyti og skilar svo tanknum fullum.“

Cargo sendibílaleiga, Skemmuvegi 32 (bleik gata), 200 Kópavogur.
Sími: 566 5030. Tölvupóstfang:info@cargobilar.is
Opnunartími: Alla virka daga frá kl. 8.00–18.00 og um helgar frá klukkan 10.00–16.00.

www.cargobilar.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“