fbpx
Sunnudagur 24.nóvember 2024
FókusKynning

Ein sápa fyrir heimilið og alla fjölskylduna

Kynning

Fjölnota sápur frá Dr. Bronner’s – Mamma veit best býður upp á fjölbreytt úrval lífrænna vörutegunda

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 1. mars 2016 09:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kynning

Heilsubúðin Mamma veit best flytur inn lífrænar sápur og húðvörur frá Dr. Bronner’s. Alhliða ­sápan frá Dr. Bronner’s er unnin úr lífrænum olíum án allra kemískra efna. Hún hentar börnum, fólki með viðkvæma húð og öllum hinum. „Eina sápan sem þú þarft fyrir alla fjölskylduna og heimilið,“ segir á heimasíðunni mammaveitbest.is. Lífræna og fljótandi sápan frá Dr. Bronner’s hentar jafnt í þvottavélina, á líkamann, í hárið eða andlitið.

Sápan er svo hrein að hægt er að bursta í sér tennurnar með henni. Óhætt er að segja að sápan sé fjölnota. Hún hentar ekki bara vel til að þrífa líkama fólks eða dýra, heldur er hún tilvalin til hvers kyns heimilisþrifa. Með sápunni má þrífa glugga, gólf, veggi, flísar og annað yfirborð auk þess sem hún hentar í þvottavélar. Sápan er jafnframt hentug til að skola ávexti og grænmeti ­fyrir matseld. ­Notkunarmöguleikar sápunnar eru nær óþrjótandi. Prófið ykkur bara áfram og kynnist því sjálf hversu frábær hún er.

Sal Suds kemur í stað hefðbundinna hrein­gerningarefna en er ekki ætlað til hár- eða húðþvottar.
Alhliða hreingerningarefni Sal Suds kemur í stað hefðbundinna hrein­gerningarefna en er ekki ætlað til hár- eða húðþvottar.

Áhersla á hreinleika og gæði

Mamma veit best er heilsubúð, vefverslun og heildsala. Tilgangur fyrirtækisins er að færa neytendum það besta af lífrænum matvælum, bætiefnum og snyrtivörum, víðs vegar að úr heiminum, með fyrsta flokks þjónustu. „Við vitum að það er heill frumskógur af heilsuvörum í boði hér á landi. Við vitum líka að þær eru eins misjafnar og þær eru margar og eru langt frá því að standa jafnfætis hvað gæði varðar. Þess vegna veljum við allar okkar vörur af kostgæfni til að tryggja að þær séu eins náttúrulegar, áhrifaríkar, heiðarlegar og umhverfisvænar og hugsast getur. Okkar markmið er að þegar þið kaupið af okkur vörur getið þið verið örugg um að fá það besta fyrir ykkur sjálf og fjölskylduna hvað varðar gæði, hreinleika og virkni.“

Mamma veit best er heilsubúð, vefverslun og heildsala. Tilgangur fyrirtækisins er að færa neytendum það besta af lífrænum matvælum, bætiefnum og snyrtivörum, víðs vegar að úr heiminum, með fyrsta flokks þjónustu.
Að Laufbrekku 30 í Kópavogi Mamma veit best er heilsubúð, vefverslun og heildsala. Tilgangur fyrirtækisins er að færa neytendum það besta af lífrænum matvælum, bætiefnum og snyrtivörum, víðs vegar að úr heiminum, með fyrsta flokks þjónustu.

Verslunin Mamma Veit Best

Verslunin Mamma veit best er að Laufbrekku 30 í Kópavogi, ofan Nýbýlavegar, en gengið er inn Dalbrekku megin. Verslunin hefur til sölu fjölbreytt úrval lífrænna vara; svo sem vítamín, steinefni, jurtir, olíur, prótín og ýmsa ofurfæðu. Heimasíða verslunarinnar er mammaveitbest.is og facebook síðan er

Áralöng hefð fyrir sápum

Lífræna og fljótandi sápan frá Dr. Bronner’s er ekki eina varan frá framleiðandanum sem Mamma veit best hefur upp á að bjóða. Í vörulínunni eru, auk fljótandi sápunnar, sápustykki, pumpusápur, húðsmyrsl, varasalvar, hárnæring, hár- og húðkrem, sótthreinsiúði fyrir hendur og kókosolía.

Dr. Bronner's framleiðir fjölmargar tegundir af sápu og hefur gert í áratugi.
Gæði Dr. Bronner's framleiðir fjölmargar tegundir af sápu og hefur gert í áratugi.

Bronner-fjölskyldan á sér langa sögu í sápugerð og fyrirtækið er nú rekið af fjórðu og fimmtu kynslóð fjölskyldunnar. Vörurnar, sem eru í senn umhverfisvænar og náttúrulegar, eru framleiddar úr lífrænum olíum án þess að við þær sé bætt gerviefnum eða skaðlegum kemískum efnum. „Húðin er stórt og mikilvægt líffæri og allt sem þú setur á húðina smýgur inn í hana og út í blóðrásina. Það er því gríðarlega mikilvægt að nota sem náttúrulegastar húðvörur til að vernda okkur fyrir skaðlegum kemískum efnum sem oft eru notuð í snyrtivörur s.s. parabenum og þalötum sem auðvitað er ekki að finna í Dr.Bronner’s-vörunum. Líkt og þær þúsundir sem nota sápurnar og húðvörurnar frá Dr. Bronner um allan heim muntu ekki vilja neitt annað eftir að hafa prófað,“ segir á mammaveitbest.is en þar má finna ítarlegar upplýsingar um vörurnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni