fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
FókusKynning

Vönduð þjónusta hjá Efnalauginni Björg

Kynning

Gæði, þekking og þjónusta

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 3. febrúar 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Efnalaugin Björg er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1953 og er staðsett á Háaleitisbraut 58–60. Að sögn Kristins Guðjónssonar, eiganda efnalaugarinnar, hefur meginstefnan í gegnum árin verið sú að vanda vel til verka, veita góða þjónustu og vera með nýjustu vélar, tæki og efni á markaðnum. „Hingað kemur fólk víða að sem treystir okkur; úr Mosfellsbæ, Akranesi, Reykjanesbæ og víðar. Fólk sem vill ekki fara neitt annað. Það kemur með sparifötin sín, uppáhaldskjólinn og spariblússuna. Við erum með eigur fólks í höndunum og verðum að vanda til verka,“ segir Kristinn Guðjónsson.

Fagmennskan í fyrirrúmi

Kristinn leggur höfuðáherslu á fagmennsku en kjörorð fyrirtækisins eru gæði, þekking og þjónusta. „Fagmennska finnst mér vera lykillinn að því að veita góða þjónustu, hvort sem það er í hreinsun, þvotti eða í frágangi. Það er líka miklu skemmtilegra að vinna þegar maður veit hvað maður er að gera. Til að tryggja fagmennsku er símenntun nauðsynleg en ég geri mér far um að sækja upplýsingar og fræðslu erlendis þar sem framfarirnar verða,“ segir Kristinn. „Til að uppfylla þessa stefnu hefur verið lögð mikil áhersla á þjálfun og í því skyni hafa starfsmenn og eigendur sótt fjölmörg námskeið erlendis til að auka þekkingu og færni sína í hreinsun viðkvæmra flíka,“ bætir hann við.

Efnalaugin er afar vel tækjum búin. Þar er meðal annars sérstök skyrtuvél sem er að skila skyrtum einstaklega vel pressuðum. Skyrtur krumpast síður eftir pressunina dugir því lengur.
Efnalaugin er afar vel tækjum búin. Þar er meðal annars sérstök skyrtuvél sem er að skila skyrtum einstaklega vel pressuðum. Skyrtur krumpast síður eftir pressunina dugir því lengur.

Fengu viðurkenningu frá Hugo Boss

Kristinn hefur verið félagi í DLI, Drycleaning and Laundry Institute, í fjölmörg ár og sótt námskeið samtakanna, meðal annars í Bandaríkjunum. Þá hefur Efnalaugin Björg fengið viðurkenningu frá fataframleiðandanum Hugo Boss fyrir frágang og hreinsun á fatnaði frá fyrirtækinu.

Þekkt fyrir góð vinnubrögð

Auk þessa eru persónuleg samskipti ávallt höfð að leiðarljósi og reynt er eftir bestu getu að koma til móts við þarfir viðskiptavinarins til dæmis með sveigjanlegum opnunartíma og flýtimeðhöndlun þegar svo ber undir að sögn Kristins. „Fyrirtækið hefur almennt gott orðspor og er þekkt fyrir góð vinnubrögð,“ segir hann. „Mikið er leitað til okkar með ýmis vandamál og svörum við fjölmörgum fyrirspurnum símleiðis um til dæmis blettahreinsun,“ bætir hann við en afkastageta fyrirtækisins hefur aukist töluvert eftir að fest voru kaup á nýju tæki fyrir frágang á skyrtum.

Eru með veitingahúsaþjónustu

„Það eru tíu veitingahús í miðborginni sem við leigjum dúka og servíettur og við förum daglega í bæinn til að sækja og senda. Við þvoum og straujum dúka, servíettur, kokkajakka og allt sem tilheyrir eldhúsum í veitingastaðanna. Þeir vilja vera fínir til fara, matreiðslumennirnir okkar,“ segir Kristinn.

Einstaklingsþjónusta en ekki verksmiðjuþvottur

„Við þjónum einstaklingum og litlum fyrirtækjum. Það fer illa saman við það sem ég kalla verksmiðjuframleiðslu í þvotti. Til þess eru til dæmis fyrirtæki eins og Þvottahús ríkisspítalanna. Við erum að fá jóladúkinn sem amma saumaði til dæmis. Þar er ólíku saman að jafna,“ segir Kristinn. „Skyrtuþvottur hefur jafnt og þétt aukist síðustu tíu árin og við tökum inn mörg hundruð skyrtur í viku, menn koma kannski með 8 til 10 skyrtur í einu. Þeir sjá það og finna að þeir geta notað skyrtuna lengur eftir að hafa fengið hana frá okkur heldur en ef þeir þvo hana heima. Vegna þess að í þvottinum hjá okkur eru alls konar efni til að halda skyrtunni betur við. Í pressuninni erum við líka með einstaklega flotta skyrtuvél sem tók mig fimm ár að finna – réttu vélina,“ segir Kristinn. „Menn eru því ekki eingöngu að spara sér sporin með því að fara með skyrturnar í þvott til Bjargar heldur halda þær sér miklu lengur,“ bætir hann við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“