fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
FókusKynning

Dýrabær – Náttúrulegar vörur fyrir dýr

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 25. febrúar 2016 16:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dýrabær selur vörur fyrir hunda, ketti og önnur gæludýr. Lögð er áhersla á vörur sem unnar eru úr náttúrulegum hráefnum án aukaefna, svo sem rotvarnar- og litarefna. Hjá Dýrabæ er lögð mikil áhersla á að bjóða upp á vörur sem viðhalda heilbrigði og vellíðan dýranna og því eru allar vörur í búðunum valdar af mikilli kostgæfni. Fyrirtækið var stofnað í desember 2001 og verður því 15 ára á þessu ári. Verslanir Dýrabæjar eru þrjár, í Kringlunni, Smáralind og Reykjanesbæ ásamt útibúi í verslun AMH á Akranesi. Einnig er dreifing á Akureyri á hunda- og kattamat sem Dýrabær flytur inn. Dreifingaraðili á Akureyri er Ragnar Þorgrímsson.

Umhverfismeðvitað fyrirtæki

Dýrabær vinnur eftir umhverfisstefnu fyrirtækisins og er virðing fyrir umhverfinu, dýrum og náttúru landsins þeim hjartans mál. Lögð er áhersla á að umgangast bæði dýr og náttúru af virðingu og markmið fyrirtækisins er að vera í fararbroddi með náttúrulegar, umhverfisvænar og aukaefnalausar vörur fyrir gæludýr og uppfylla lög og reglugerðir á sviði umhverfismála. Auk þess að bjóða upp á umhverfisvænar vörur kappkostar Dýrabær að hafa snyrtimennsku í fyrirrúmi og flokka allan úrgang og rusl úr verslunum sínum. Vellíðan dýranna er ekki síður mikilvæg og er fyrirtækið dýravænn staður þar sem er lögð áhersla á lifandi og skemmtilegt umhverfi. Starfsfólk verslananna er svo ávallt reiðubúið að veita ráðgjöf og hvetur eigendur gæludýra til þess að gæta þrifnaðar í kringum dýrin og gæta þess að þau valdi ekki óþrifnaði með umgengni sinni.

Fjölbreytt úrval á hagstæðu verði

Dýrabær býður upp á fjölbreytt úrval af vörum á mjög hagstæðu verði. Hunda- og kattamatur sem boðið er upp á er af háum gæðum og er í gæðaflokkunum Ultra Premium, Super Premium og Premium. Fóðurtegundir fyrir hunda og ketti sem fást í verslunum Dýrabæs eru Barking Heads, Meouwing Heads, Bosch, Sanabelle, Canagan, AATU, Regal, Natures Menu, Calibra, Royal Canin, ásamt ferskfóðri frá Hundahreysti. Fóðurtegundir fyrir fugla, hamstra, naggrísi, kanínur og degu eru Excel og Lolo.

Mikilvægur hluti þess að velja fóður fyrir dýrið sitt er að kynna sér innihald og efnagreiningu fóðursins. Þessar upplýsingar eru allar aðgengilegar á vefsíðu Dýrabæjar, en starfsfólk verslananna veitir einnig ráðgjöf og aðstoð. Að auki er boðið upp á fríar prufur af þurrfóðri og þannig er gæludýraeigendum auðvelduð leitin að hinu fullkomna fóðri.

Áhersla Dýrabæjar hefur alltaf verið lögð á hágæða og náttúrulega vörur. Hið þekkta viðkvæði, „Við erum það sem við borðum“ á líka við um gæludýrin okkar.

Opnunartíma og símanúmer verslananna má finna á heimasíðu fyrirtækisins og þar eru einnig upplýsingar um vörur og þjónustu. Aðalsíminn er 511-2022 og netfangið er dyrabaer@dyrabaer.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“