Íslensk fjallagrös hafa að geyma margs konar lækningamátt
Vörur frá Íslenskum fjallagrösum hf. hafa fengist í nokkur ár í apótekum landsins en núna fannst fyrirtækinu kominn tími til að uppfæra útlitið og útfæra heildstætt vörumerki fyrir línuna. Úr varð vörulínan ICEHERBS.
Katrín A. Friðriksdóttir er verkefnastjóri breytinga:
„Við leggjum áherslu á að vera með fjölbreyttar vörur. Aðalvara og undirstaða tilveru ICEHERBS, eru íslensk fjallagrös. Eins og alkunna er hafa íslensk fjallagrös að geyma margs konar lækningamátt og hafa þau verið notuð af þjóðinni langt aftur í aldir. Síðustu ár hafa íslensku fjallagrösin e.t.v. fallið í skugga margra annarra jurta/bætiefna, en við viljum endurvekja áhuga Íslendinga á þeim og fræða þá um eiginleika fjallagrasanna.Varan Flóra er móðirin í vörulínunni. Við erum þó sífellt að koma fram með nýjungar til þess að mæta þörfum markaðarins en mjög margir Íslendingar hafa áhuga á að nýta sér náttúruleg bætiefni til þess að auka lífsgæði sín og heilsu,“ segir Katrín.
Að sögn Katrínar eru fjallagrösin að sjálfsögðu tínd hér á landi og þá helst á Jökuldalsheiði og öll framleiðsla fer fram í verksmiðju á Blönduósi.
„Við erum afar stolt af vörulínunni okkar og ekki hvað síst vegna þess að bætiefnin bera engin auka- né uppfylliefni og eru hylkin úr jurtabeðmi. Þau innihaldsefni sem við notum, sem ekki fást úr náttúru Íslands, eru innflutt og gæðastimpluð en þeim er þá blandað við íslensk fjallagrös, sem mynda mjög góða og áhrifaríka blöndu.“
Hugmyndin með stofnun Íslenskra fjallagrasa hf. var að nýta íslenskt hráefni, fjallagrös, sem á þeim tíma hafði verið flutt úr landi óunnið, að sögn Katrínar.
„Fyrirtækið byggir enn á þessari sögu en hefur einnig fært framleiðsluna yfir á aðrar afurðir úr íslenskri náttúru. Í sögu fyrirtækisins liggur mikið hugvit og vinna. Styrkleikar fyrirtækisins felast einkum í hráefninu, eiginleikum þess og gæðum ásamt hreinleika íslenskrar náttúru, þaðan sem hráefnið kemur,“ segir Katrín og bætir við að Íslensk fjallagrös hf. hafi að markmiði að nýta íslenskar náttúruauðlindir og tengja þær við sögu og hefðir íslensku þjóðarinnar. „Vörur Íslenskra fjallagrasa eru heilsu- og fæðubótarvörur sem byggja á aldagamalli trú manna, styrktri af vísindarannsóknum, á áhrifamætti fjallagrasa og annarra íslenskra náttúruafurða. Heilsuvörur fyrirtækisins höfða einkum til þess vaxandi hóps fólks sem hugsar á fyrirbyggjandi hátt um heilsu,“ segir Katrín og bætir við að íslensk framleiðsla og hugvit séu aðalsmerki fyrirtækisins.
„Hjá okkur starfar doktor í lífefnafræði sem leiðir alla vöruþróun sem sannarlega er ákveðinn gæðastimpill,“ segir hún.
Á heimasíðunni www.fjallagros.is er ítarlegri upplýsingar um Iceherbs vörurnar og eiginleika þeirra.