Þar sem íslenska karlalandsliðið í fótbolta er, þar er Tólfan líka.
Nú er ný Tólfutreyja komin í sölu á Heimkaup.is! Frí heimsending hvert á land sem er. Treyjan kostar 8.990 kr. og að sjálfsögðu er hægt að láta sérmerkja hana.
Tólfan er í skýjunum! Íslenska karlalandsliðið á sögulegt sumar framundan á EM í Frakklandi – og það hefur aldrei verið skemmtilegra að vera stuðningsmaður íslenska landsliðsins í fótbolta.
„Allir stuðningsmenn landsliðsins eru í Tólfunni og við, stuðningsmenn, tökum þátt í ævintýrinu af fullum krafti; fjölmennum á leiki og styðjum landsliðið alla leið – hvar sem er. Nýja EM Tólfutreyjan er fáanleg í barna- og fullorðinsstærðum. Að sjálfsögðu er hægt að láta sérmerkja treyjuna – margir láta merkja Tólfutreyjuna sína með einhverju skrítnu og skemmtilegu og það vekur enn meiri athygli á þessari flottu treyju.
Tólfutreyjurnar eiga stóran þátt í því að þjappa mannskapnum saman og í raun skapa einstaka stuðningsmannamenningu. Tólfutreyjunni var einstaklega vel tekið þegar hún fór fyrst í sölu og mikil stemning hefur verið í kringum treyjurnar. Til að mynda seldist fyrsta sending upp samdægurs.“ segir Friðrik Kristjánsson markaðsstjóri hjá Heimkaup.is
Treyjurnar hafa frá upphafi verið unnar í samstarfi við HENSON sem sér einnig um að sérmerkja fyrir 1.500 kr. kjósir þú það. Treyjan kostar einungis 8.990 kr. og hún fæst á Heimkaup.is
Þið einfaldlega pantið treyjuna á Heimkaup.is, veljið nafn á bakið og stærð. Hægt er að borga með korti, greiðsluseðli, Netgíró eða með korti/peningum þegar þið takið á móti treyjunni. Ef sérmerkja á treyjuna getur afgreiðsla tekið fáeina daga en annars berast treyjurnar sama dag og pantað er eða daginn eftir.
Það eru eintóm ævintýri framundan í Frakklandi og þangað fer Tólfan í Tólfutreyjunum. Áfram Ísland!