fbpx
Föstudagur 29.nóvember 2024
FókusKynning

Þorskhnakki í sparigalla

Kynning

Og heppinn viðskiptavinur fær 150 þúsund króna úttekt í jólagjöf

Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 20. desember 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jólaleikur Hafsins

Jólaleikurinn er byrjaður í Hafinu Fiskverslun og geta allir viðskiptavinir Hafsins tekið þátt. Það eina sem þarf að gera er að versla eitthvað í einni af þremur verslunum Hafsins. Við hverja afgreiðslu fær viðskiptavinur miða sem hann getur merkt sér og sett í kassa sem er í versluninni. Því oftar sem verslað er, því meiri líkur eru á vinningi. Þann 22. desember er svo dregið úr pottinum og þá er að vona að heppnin sé með manni. Þetta er í þriðja sinn sem Hafið er með jólaleikinn og eru vinningarnir í ár ekki af verri endanum:

Aðalvinningurinn er 150 þúsund króna úttekt hjá Hafinu Fiskverslun.
Að auki eru tveir stórglæsilegir aukavinningar. Annar aukavinningurinn er gjafakarfa að andvirði 50 þúsund krónur og hinn aukavinningurinn er Sansaire sous vide-hitajafnari ásamt fiskiveislu og kennslu.

Fiskur sem léttur hátíðarmatur

Hafið er með ótrúlegasta góðgæti í verslunum sínum. Ásamt því að selja kæsta skötu fyrir Þorláksmessu þá er Hafið með alls kyns fiskmeti sem sómir sér vel á borðum yfir hátíðarnar. „Við erum með okkar eigin lax sem er grafinn eða reyktur eftir kúnstarinnar reglum. Einnig erum við að selja humarsúpuna okkar og ýmsar aðrar vörur svo sem sósur og pestó sem henta til dæmis vel með laxi.

Einnig erum við með rækjur og humar, bæði stóran og lítinn. Við mælum sérstaklega með þessum vörum í forrétt yfir hátíðarnar en auðvitað henta þær einnig sem aðalréttur. Svo er það alltaf að aukast að fólk skipti út þungu jólasteikunum fyrir fiskinn og þá koma skötuselurinn og lúðan sterk inn. Skötuselurinn er þéttur í sér og mikil gæðavara. Þessi fiskur kemur algerlega í staðinn fyrir kjötið og er jafnvel enn betri. Lönguhnakkar eru svo nokkuð hagkvæmari kostur og svipar þeim aðeins til skötuselsins og lúðunnar. Langan er einnig þétt í sér og mjög bragðgóð,“ segir Vera, fjármála- og markaðsstjóri Hafsins. Vera mælir eindregið með því að fólk gæði sér á fiski yfir hátíðarnar enda er hann léttur í maga og einstaklega góður. Meðfylgjandi er uppskrift sem er í miklu uppáhaldi.

Mynd: © Karl Petersson 2015

Jólaþorskur:

Steinar Bjarki Magnússon, matreiðslumeistari Hafsins, hefur sett saman stórkostlega en jafnframt einfalda uppskrift. Hægt er að skipta einni af fjölmörgu kjötmáltíðum desembermánaðar út fyrir þennan léttari, en þó alls ekki síðri, valkost.

Hráefni:
Þorskhnakki 1,2 kg
Salt 3 msk.
Sykur 2 msk.
Púðursykur 1 msk.
Kanill 1 tsk.
Stjörnuanís 6 stk.
Appelsínuþykkni 100 ml
Olía 5 msk.
Smjör 200 g

Aðferð:
Skerið þorskinn í 300 g sneiðar og raðið á eldfast mót. Látið salt, sykur, púðursykur, kanil, stjörnuanís og appelsínuþykkni í matvinnsluvél og hrærið í 3 mín. eða þar til allt er vel blandað saman. Smyrjið blöndunni á þorskinn og látið liggja á honum í 1 klst. í kæli.
Skolið þorskinn og þerrið vel. Hitið pönnu og setjið svo olíu á pönnuna. Bætið þorskinum út á pönnuna og steikið í 3 mín. Snúið þorskinum við og bætið við smjörinu, steikið svo í 3 mín. til viðbótar. Færið þorskinn í eldafasta mótið og bakið við 180°C í 8 mín. og leyfið honum síðan að hvíla í 4 mín. áður en hann er borinn fram.

Perusalat

Hráefni:
Perur 4 stk.
Sellerí 2 stönglar
Sýrður rjómi 200 g
Rjómi 100 ml
Flórsykur 4 msk.
Lime/súraldin 1 stk.
Furuhnetur 3 msk.

Aðferð:
Afhýðið perurnar og skerið þær og sellerí stönglana í litla teninga og setjið í skál.
Léttþeytið rjómann og blandið honum svo saman við. Kreistið súraldin yfir blönduna, bætið restinni af hráefninu við og hrærið vel saman. Gott er að geyma smá furuhnetur til að strá yfir sem skraut.

Jólaþorskur
Jólaþorskur

Mynd: © Karl Petersson 2016

Appelsínusósa

Hráefni:
Appelsínuþykkni 200 ml
Vatn 500 ml
Kjúklingakraftur 2 teningar
Smjör 30 g
Hveiti 30 g
Rjómi 100 ml

Aðferð:
Látið smjörið í pott og bræðið. Hrærið hveiti saman við. Hellið vatni og þykkni saman við sem og kjúklingkrafti og fáið suðu upp. Látið malla í 15 mín. Léttþeytið rjóma og hrærið honum saman við þegar sósan er borin fram. Gott er að bera fram ofnbakaðar kartöflur með réttinum.

Verslanir Hafsins eru staðsettar að Hlíðasmára 8, Spönginni 13 og Skipholti 70.
Hægt er að hafa samband í síma 554-7200
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Hafsins www.hafid.is eða á Facebook-síðu verslunarinnar

Opið er í verslunum Hafsins frá 10.00–18.30 virka daga, á aðfangadag frá 9–12 og gamlársdag frá 10–14

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“