CargoFlutningar
CargoFlutningar er flutningaþjónusta sem staðsett er í Reykjanesbæ og sérhæfir sig í smærri vöruflutningum á milli Reykjavíkur og Suðurnesja. Eigandinn, Guðbergur Reynisson, hóf starfsemina í ágúst árið 2009 og notaðist þá við einn bíl og viðskiptavinirnir voru tveir. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og starfsemin hefur vaxið mikið og eru bílarnir nú sex samtals.
„Við erum með á milli 400 til 500 viðskiptavini í misreglulegum viðskiptum og erum að taka á móti 80 til 90 símtölum daglega. Hver bíll fer tvær ferðir daglega á milli Reykjavíkur og Suðurnesja og því eru þetta samtals 12 ferðir á dag. Við leggjum af stað um klukkan 9 úr Reykjanesbæ til Reykjavíkur og farið er aftur suður eftir hádegi. Síðan er lagt aftur af stað til Reykjavíkur um klukkan 14.“
Bílaflotinn samanstendur af nýlegum bílum og segir Guðbergur að það sé mikilvægt, því það skilar sér í minna viðhaldi. Hentugustu bílarnir að sögn Guðbergs eru Ford Transit, Benz Sprinter, Volkswagen Crafters og Renault Masters.
Hraði og öryggi eru helstu kostir þjónustunnar hjá CargoFlutningum en með þessari leið geta fyrirtæki sent smærri vörusendingar með nánast engum fyrirvara. Afar mörg fyrirtæki nýta sér þessa þægilegu þjónustu. „Við erum fyrst og fremst að þjónusta fyrirtæki en við flytjum einnig eitthvað fyrir einstaklinga. Um 90 prósent af viðskiptunum eru við fyrirtæki sem þurfa að senda vörur á milli þessara svæða,“ segir Guðbergur.
Þeir sem þurfa að senda eitthvað hratt og örugglega á milli Reykjavíkur og Suðurnesja ættu einfaldlega að hringja í CargoFlutninga í síma 845-0900 og málið er afgreitt fljótt og örugglega.