fbpx
Föstudagur 29.nóvember 2024
FókusKynning

Frábærar jólagjafir úr ekta, handunnu leðri

Kynning

Bólstursmiðjan og Leðurverkstæðið Reykjavík, Síðumúla 33

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 13. desember 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bólstursmiðjan og Leðurverkstæðið Reykjavík eru samtvinnuð fyrirtæki sem eiga sér sögu aftur til ársins 1937 er opnað var leðurverkstæði í bakhúsi að Víðimel 35 í Vesturbænum. Sigurjón Kristensen er annar eigandi þessara fyrirtækja í dag en hinn er Arne Friðrik Karlsson. Sigurjón kynntist leðuriðjunni ungur að árum í Vesturbænum:

„Ég er eiginlega alinn upp þarna að Víðimel 35 þar sem leðurverkstæðið var í bakhúsi og var alltaf að skottast þarna inni á verkstæðinu. Það var stjúpafi minn sem rak þetta allt til ársins 1982 en þá tók sonur hans við. Ég og Arne Friðrik kaupum síðan fyrirtækið af þeim hjónum árið 2014,“ segir Sigurjón.

Tímamót urðu í sögu fyrirtækisins í lok nóvember síðastliðinn þegar opnuð var leðurvöruverslun að Síðumúla 33 þar sem fyrirtækin eru til húsa:

„Þetta var alltaf framleiðslufyrirtæki sem seldi í verslanir og heildsölu. Við gerum það eitthvað áfram en leggjum núna áherslu á okkar eigin verslun. Við erum að breikka vöruúrvalið en núna eru flottar leðursvuntur, til dæmis grillsvuntur, mjög vinsælar. Þær henta líka vel fyrir veitingastaði. Uppistaðan í vöruúrvalinu er hins vegar belti og axlabönd úr leðri. Þetta eru góðar jólagjafir handa karlmönnum, á fínu verði, úr úrvalsleðri og allt unnið hér á verkstæðinu. Við erum líka með ýmsar aðrar vörur, til dæmis fínni belti, svokölluð full-grain belti, þar sem leðrið er eins og það kemur af skepnunni, fjögurra millimetra þykkt og handunnið. Þetta er gott að gefa í jólagjöf en ekki er þó hægt að fá það í lengdum heldur kaupir sá sem gefur gjöfina leðurreimina og sylgjuna en þiggjandi gjafarinnar kemur síðan með hana til mín og ég klæðskerasníð beltið á hann á meðan hann bíður.“

En Bólstursmiðjan er líka til húsa að Síðumúla 33 og þar geta bæði fyrirtæki og einstaklingar fengið bólstruð húsgögn og gert við þau:

„Ég er menntaður bólstrari og við framleiðum húsgögn hérna fyrir ýmsar húsgagnaverslanir. Það er líka bólstrunarþjónustu á staðnum. Við bólstrum allt, sæti í bíla, langferðabíla og flugvélar. Líka antikhúsgögn.“

Starfsemin er því afar fjölbreytt en leður er rauði þráðurinn. Þeir sem hafa áhuga á að skoða fallegar jólagjafir úr ekta leðri eða láta bólstra fyrir sig ættu að kíkja í Bólstursmiðjuna/Leðurverkstæðið Reykjavík að Síðumúla 33. Einnig er forvitnilegt að skoða Bólstursmiðjuna á Facebook og heimasíðu leðurverkstæðisins, lvr.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“