Café Loki, Lokastíg 28
Café Loki er til húsa efst á Skólavörðuholtinu, á Lokastíg 28, og úr salnum er gott útsýni yfir að Hallgrímskirkju, einu helsta kennileiti Reykjavíkur fyrir erlenda ferðamenn. Café Loki er líka í vissum skilningi ákaflega íslenskur staður og hefur upp á nákvæmlega það að bjóða sem margir ferðamenn sækjast eftir: ekta íslenskan mat.
En Loki er þó ekki síður vinsæll meðal Íslendinga sem gjarnan vilja borða ekta íslenskan heimilismat af fágætum gæðum. Aðventuplatti á Café Loka, sem bætist við matseðilinn upp úr miðjum nóvember, hefur ýmis ljúffeng sérkenni.
Ekki er um eiginlegt hlaðborð að ræða heldur er svokallaður aðventuplatti á boðstólum. Þar er meðal annars tvíreykt hangikjötstartar. Reykinguna annast Gylfi á Skútustöðum en handbragð hans þykir engu líkt. Gylfi reykir einnig silunginn sem er á matseðli Loka en á aðventunni er silungurinn í sparibúningi.
Annað sælgæti á jólamatseðlinum sem margir gestir koma aftur og aftur til að njóta er kanilsíldin sem borðuð er með dísætu, nýbökuðu, íslensku rúgbrauði. Það sama má segja um rúgbrauðsísinn sem borinn er fram á rúgbrauði, en rjómi og síróp ofan á.
Sjávarréttatartalettur með rækju og humri í hvítvínssósu eru líka vinsælt lostæti á aðventuplattanum.
Café Loki er í eigu Hrannar Vilhelmsdóttur textíllistakonu og eiginmanns hennar, Þórólfs Antonssonar fiskifræðings. Hrönn er með vinnustofu fyrir ofan veitingasalinn en seinni árin hefur þó sífellt meiri vinna farið í veitingareksturinn. Reksturinn á Café Loka er líka skapandi heild þar sem hugað er að hverju atriði. Til dæmis fékk Hrönn listamennina Sigurð Val Sigurðsson og Raffaelu til að teikna og mála glæsilega veggmynd í matsalnum úr Ragnarökum og fleiri sögum úr norrænu goðafræðinni, þar sem meðal annars koma við sögu æsirnir Baldur, Freyja og Loki. Þar með eru tengdar saman göturnar í nágrenninu, Lokastígur, Baldursgata og Freyjugata.
Andrúmsloftið á Loka getur verið afar fjölbreytt því þangað leita jafnt Íslendingar sem útlendir ferðamenn til að njóta íslenskrar matarmenningar. Íslendingar koma einnig gjarnan með erlenda gesti með sér á staðinn.
Drykkjaúrvalið með jólaréttunum er einnig afar íslenskt: íslenskt brennivín og ákavíti og íslenskur bjór, þar á meðal bjórinn Loki sem er sérmerktur fyrir Café Loka.