fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
FókusKynning

Hvað er appelsínuhúð?

Ættgengir þættir, kynþáttur, ofþyngd, hormónabreytingar, slæmt mataræði og hreyfingarleysi geta skýrt appelsínuhúð

Ritstjórn DV
Laugardaginn 26. nóvember 2016 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helsta vörnin gegn appelsínuhúð er að vera reglubundið í góðu líkamlegu formi og þjálfun.
Appelsína Helsta vörnin gegn appelsínuhúð er að vera reglubundið í góðu líkamlegu formi og þjálfun.

Mynd: 123rf.com

Það er vel þekkt að konur hafa frekari tilhneigingu en karlar til að fá appelsínuhúð. Fitufrumur og samsafni þeirra er haldið saman af kollagenþráðum sem eru bundnir við vöðvalög undir þeim. Þegar fitumagn eykst eða ef kollagen þræðirnir dragast saman, til dæmis við hrörnun og hærri aldur, veldur það útbungun fituvefjar með „holumyndun“ á milli sem í daglegu tali nefnist appelsínuhúð.

Þetta er ekki sjúkdómur heldur öllu fremur ástand sem flestar ef ekki allar konur glíma við á lífsleiðinni og karlar að hluta til líka. Ýmsar skýringar eru taldar vera á því hvers vegna sumir fá frekar appelsínuhúð en aðrir, nægir þar að nefna ættgenga þætti, ofþyngd, hormónabreytingar, slæmt mataræði og hreyfingarleysi sem og kynþátt. Hvítar konur eru líklegri en asískar til að fá appelsínuhúð svo dæmi sé tekið, en þetta er þó fyrst og fremst einstaklingsbundið.

Minniháttar árangur

Hégómi kvenna og markaðsleg misnotkun hans um langt skeið veldur því að sífellt fleiri vörur, meðferðir og aðferðir hafa litið dagsins ljós í því skyni að meðhöndla appelsínuhúð. Sumir lofa meira að segja 100 prósenta árangri sem auðvitað er hreint út sagt kjánalegt. Auðvitað er þetta ekki allt gagnslaust og ég efa ekki að margir munu halda fram ágæti vöru sinnar sem eðlilegt er.

Það liggja fyrir rannsóknir um ágæti einstakra þátta, en þeir eiga allir sammerkt að árangurinn er í besta falli tímabundinn eða minniháttar. Gildir þar einu hvort um er að ræða krem, dropa, nudd, bakstra, ljósameðferð, rafbylgjur, aðgerðir á hefðbundinn máta eða með frost- og lasertækni.

Forðast of mikið áfengi og kaffi

Það ber þó að hafa í huga að helsta vörnin ef kalla má svo gegn appelsínuhúð er að vera reglubundið í góðu líkamlegu formi og þjálfun, drekka nægjanlega af vatni, passa mataræði sitt og þá sérstaklega fitu og kolvetnishlutann. Megrunarkúrar og mikil sveiflur á vigtinni geta aukið líkur á appelsínuhúð og þá er auðvitað mikilvægt að drekka ekki of mikið af áfengi, kaffi eða reykja tóbak.

Það er vel þekkt að konur hafa frekari tilhneigingu en karlar til að fá appelsínuhúð.
Appelsínuhúð Það er vel þekkt að konur hafa frekari tilhneigingu en karlar til að fá appelsínuhúð.

Mynd: 123rf.com

Þegar öllu er á botninn hvolft er iðnaðurinn í kringum appelsínuhúð og hégóma kvenna mörg hundruð milljarða króna virði á ársgrundvelli um heiminn allan. Það eru því miklir hagsmunir í húfi og sannfæringarmáttur auglýsinga auk reynslusagna og óstaðfests meðferðarárangurs gríðarlega verðmætur, hvað þá heldur staðalímynd kvenna sem stillt er upp fyrir framan okkur á hverjum einasta degi.

Tímabundnar skyndilausnir

Þegar gefnar eru ráðleggingar varðandi skyndilausnir getur niðurstaðan aldrei orðið önnur en tímabundin samanber orð mín hér að framan. Við læknar og fagfólk, sem reynum að vinna með forvarnir og almenna heilsueflingu að leiðarljósi á hverjum degi, gerum að mínu viti meira gagn gegn appelsínuhúð en við fáum lof fyrir, því heilbrigð sál í hraustum líkama er líklegri til að hafa síður minnimáttarkennd yfir líkama sínum og viðhalda líkamlegu atgervi.

Hugsaðu málið, fjárfestu í sjálfri þér !

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“