Prinsessan, Álfabakka 14b, prinsessan.is
Prinsessan er gróin og sívinsæl kjólabúð fyrir konur á öllum aldri, staðsett í Mjóddinni. Verslunin hefur verið starfandi í 19 ár og þangað koma í bland við nýja viðskiptavini margir sem átt hafa viðskipti við verslunina í mörg ár. Í Prinsessunni er meðal annars að finna fallega jólakjóla, skó og spariföt á drengi. Einnig eru þar flottir toppar og túnikur á konur á öllum aldri, en þetta eru frábærar jólagjafir og fást í stærðum frá S og upp í 3XL.
Prinsessan hefur alltaf verið þekkt fyrir fallega síðkjóla og stutta kjóla, stærðir XS til 5XL. Einnig flotta prinsessukjóla á stelpur. Síðan eru alltaf útsölukjólar frá 12.000 kr. og stuttir kjólar frá 5.000 kr.
„Útsölusíðkjólarnir eru síðan sérstaklega vinsælir enda mjög fallegir,“ bætir Svanhildur við, en allt frá barnungum telpum upp í eldri dömur eignast fallega kjóla frá Prinsessunni.
Þess má geta að ný sending af síðkjólum, toppum og túnikum var að koma í hús sem afar spennandi er að skoða og kynna sér enda eru framundan tímar sem geta kallað á ný spariföt, til dæmis árshátíðir og síðar jólahlaðborð.
Prinsessan er til húsa að Álfabakka 14B í Mjóddinni. Opið er virka daga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá kl. 11 til 14. Er nær dregur jólum verið opið lengur. Sjá nánar á vefsíðunni prinsessan.is og Prinsessan á Facebook.