Gjafabréf frá snyrtistofunni Dimmalimm eru spennandi kostur
Snyrtistofan Dimmalimm var stofnuð 1. september árið 2006 og fagnaði því tíu ára afmæli í haust. Dimmalimm leggur mikla áherslu á vandaða, persónulega þjónustu og notar starfsfólk hennar eingöngu hágæðavörur í allar meðferðir sem stofan býður upp á. Svana Björk Hjartardóttir, meistari í snyrtifræði og dáleiðari, er stofnandi og eigandi stofunnar, sem er til húsa að Hraunbæ 102a, fyrir aftan Árbæjarblóm.
„Okkar markmið er að viðskiptavinum okkar líði sem best í notalegu og slakandi umhverfi þegar þeir koma til okkar og geti hvílt sig frá daglegu amstri. Við leggjum áherslu á fagmennsku, gæði og ævintýralega vellíðan,“ segir Svana.
„Við bjóðum upp á falleg gjafabréf fyrir öll tækifæri,“ segir Svana. „Tilvalin í jólapakkann, tilvalin fyrir fyrirtæki til að gefa starfsfólki sínu eða viðskiptavinum. Gjafabréfin eru innpökkuð í kassa með slaufu, hvort sem um er að ræða jólagjöf eða tækifærisgjöf. Pakkinn er tilbúinn beint í afmælið eða undir jólatréð.“
Að sögn Svönu eru gjafabréfin sniðin að þörfum og óskum viðskiptavinarins og inniheldur þær meðferðir og vörur sem hann kýs, en Dimmalimm veitir líka með ánægju ráðgjöf og hugmyndir um innihaldið. Þess má geta að í nóvember er tilboð á fótsnyrtingu með OPI gellökkun sem einnig er hægt að kaupa sem jólagjafabréf.
Gjafabréfin eru til sölu á staðnum. Hægt er að panta þau fyrirfram í síma 557-5432 eða með tölvupósti á dimmalimm@dimmalimm.is og gjafabréfið bíður síðan tilbúið þegar viðskiptavinurinn kemur á staðinn. En auk þess geta þeir viðskiptavinir sem eiga erfitt með að koma á staðinn fengið gjafabréfið sitt sent í pósti.
Dimmalimm býður upp á allar helstu snyrtimeðferðir, auk Dermatude Meta Therapy sem er eins sú vinsælasta á markaðnum í dag. Á Dimmalimm er einnig hægt að panta tíma í dáleiðslu og dáleiðsluandlitsmeðferð þar sem megináherslan er lögð á djúpslökun og vellíðan. Úrval meðferða má skoða á heimasíðunni, dimmalimm.is.
Dimmalimm selur og vinnur einungis með vandaðar hágæða vörur. Þar má nefna hinar margrómuðu, ítölsku snyrtivörur frá Comfort Zone og Dermatude. Til gamans má geta að að hinar sívinsælu jólapakkningar frá Comfort Zone eru væntanlegar. Enn fremur er hin þekkta og vandaða Moroccanoil Body-lína til sölu á stofunni. Að auki vinnur stofan með og selur OPi-naglavörur, Tweezerman og Rapidlash.
„Við tökum ávallt vel á móti viðskiptavinum okkar og leggjum mikið upp úr að fólki sem kemur til okkar líði vel,“ segir Svana. „Endilega fylgist með okkur á Facebook-síðunni okkar og Snapchat undir s.dimmalimm, þar er að finna fróðleik, nýjungar, leiki og fleira,“ segir hún. Jafnframt er stofan með heimasíðuna www.dimmalimm.is, þar sem hægt er að sjá allar meðferðir og vörur sem í boði eru.
Sem fyrr segir er Dimmalimm til húsa að Hraunbæ 102a, 110 Reykjavík. Opið er alla virka daga frá kl. 10.00 til 18.00 og á laugardögum eftir samkomulagi. Tímapantanir í síma 557-5432.