fbpx
Föstudagur 29.nóvember 2024
FókusKynning

Njóta samveru og sköpunarkrafts hver annarrar

Kynning

Nostra við gjafavörur í Vestmannaeyjum

Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 15. nóvember 2016 09:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nostra er falleg gjafavöruverslun sem stofnuð var í fyrra. Verslunin er staðsett í gömlu og rótgrónu verslunarrými í Vestmannaeyjum og er í eigu Lindar Hrafnsdóttur, grafísks miðlara, Önnu Guðnýjar Laxdals kjólasveins og Sigríðar Ingu Kristmannsdóttur, kjóla- og klæðskerameistara. Þar eru til sölu margar fallegar vörur sem þær stöllur hanna og búa til á staðnum. „Hér er einnig verkstæði sem við vinnum saman í og svo tökum við líka að okkur ýmis sérverkefni,“ segir Lind. Lind og Sigga Inga eru fæddar og uppaldar í Vestmannaeyjum, en Anna Guðný flutti til Eyja átta ára gömul. Því má segja að þær séu allar Vestmanneyingar í húð og hár.

Útsaumaðir púðar eftir Önnu Guðnýju.
Útsaumaðir púðar eftir Önnu Guðnýju.

Nostra við allt í Nostru

Verslunina stofnuðu stöllurnar til að koma vörum sínum á framfæri, „en einnig til að samnýta vinnuaðstöðu, njóta samveru og sköpunarkrafts hver annarrar,“ segir Lind og bætir við að nafnið á búðinni sé komið frá sögninni að nostra, að nostra við hlutina. „Það fannst okkur passa mjög vel þar sem við hönnum og framleiðum hlutina með alúð og vandvirkni og nostrum því við sérhvern hlut.“

Stjörnumerkjaplattar eftir Lind.
Stjörnumerkjaplattar eftir Lind.

Anna Guðný hefur unnið mikið með útsaum. Til dæmis hefur hún gert dásamleg sængurverasett fyrir börn, og púða með mynstrum úr Íslensku sjónabókinni auk orkeraðra og heklaðra hálsmena, ásamt sérverkefnum.

Lind hefur verið að gera skilti, kerti, púða með texta og vegglímmiða. Einnig er hún í umbroti, að setja upp auglýsingar, blöð, og ýmsu fleira prenttengdu.

Sigga Inga saumar svo fylgihluti og fatnað meðal annars úr íslenskri ull ásamt því að sinna sérverkefnum.

Ullarponsjó úr hönnunarlínu Siggu Ingu.
Ullarponsjó úr hönnunarlínu Siggu Ingu.

Selja nær eingöngu eigin hönnun

Aðspurð, hvort þær selji eingöngu eigin hönnun í versluninni, svarar Lind: „Ja, mestmegnis seljum við bara okkar vörur, en við höfum líka selt handverk eftir foreldra okkar.“ Stöllurnar hafa þá verið að selja bjórbera, útprjónaða vettlinga, kertastjaka, rugguhesta, kirkju og jólatré eftir foreldra sína. „Það nýjasta hjá okkur núna eru barnakragar, húfur ullarkragar og vettlingar sem henta bæði dömum og herrum. Einnig eru komin ný veggspjöld og dúkkuvöggur. Svo ætlum við að gefa út dagatal sem er enn í vinnslu ásamt öðrum vörum,“ segir Lind. Sigga Inga, Lind og Anna Guðný eru greinilega hæfileikaríkir hönnuðir og afkastamiklir því þær eru sífellt að bæta við vöruúrvalið í versluninni.

Lind hannaði þennan fallega púða fyrir Hafrúnu Dóru.
Lind hannaði þennan fallega púða fyrir Hafrúnu Dóru.

Fyrir þá sem eiga ekki kost á að versla við Nostru í Vestmannaeyjum er verslunin einnig með [netverslun](www.nostraverzlun.is, sem opnaði í sumar, þar sem seldar eru vörurnar úr búðinni. „Við sendum um allt land og jafnvel til útlanda,“ bætir Lind við.

Nostra er staðsett að Vestmannabraut 33 í Vestmannaeyjum.
Þeir sem hafa áhuga á að fylgja og skoða Nostru á Instagram þá gengur verslunin undir kassamerkinu #nostraverzlun. Einnig eru Lind, Anna og Sigga Inga duglegar að setja inn nýjustu vörurnar á facebooksíðu verslunarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni