20% afsláttur til 5. nóvember
Tískuvöruverslunin My Style – Tískuhús er flutt í nýtt og betra húsnæði að Holtasmára 1 (í Hjartaverndarhúsið), 201 Kópavogi. Í tilefni af því er 20% afsláttur af öllu fram til 5. nóvember.
Verslunin My Style hefur verið starfrækt í Bæjarlind í Kópavogi síðustu þrjú ár en er nú flutt nú í Holtasmára í Kópavogi. Stella Leifsdóttir, eigandi My Style – Tískuhús og tískuvöruverslunarinnar Belladonna í Skeifunni, hefur staðið í ströngu undanfarna daga við að koma öllu í viðeigandi horf í Holtasmáranum, og er að sögn afar ánægð með nýju staðsetninguna. My Style – Tískuhús, leitast við að bjóða uppá gott úrval af smart og vönduðum kvenfatnaði frá Danmörku og Hollandi í stærðum 38-54. Einkunnarorð My Style má segja að séu fjölbreytni, þægindi og gott verð verð.
My Style – tískuhús rekur einnig vefverslunina var þar sem viðskiptavinir geta verslað og skoðað vörur á eigin hraða og fengið flíkurnar sendar heim. Í vefversluninni getur þú skoðað þig um og verslað á þínum hraða, þegar þér hentar og fengið vörurnar sendar heim.
My Style – Tískuhús er staðsett að Holtasmára 1, 201 Kópavogi.
Hægt er að hafa samband í síma 571-5464 eða með því að senda póst á netfangið info@tiskuhus.is.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefverslun og facebooksíðu My Style.