Það verður meiriháttar Halloween-partí á Boston Reykjavík, Laugavegi 28b, á laugardagskvöldið. Partíið byrjar klukkan 10 um kvöldið og stendur til kl. 3 um nóttina. DJ KGB sér um tónlistina en hann er heldur betur vanur í bransanum, hefur spilað í yfir 15 ár. Kynning verður á nýjum glúteinlausum bjór frá Spáni og verður hann gefinn gestum. Staðurinn verður skreyttur í anda hrekkjavökunnar. Húsið er opnað klukkan 16 og er matur borinn fram frá kl. 17 til 22 um kvöldið þegar Halloween-partíið byrjar. Það er aldrei rukkað inn á Boston Reykjavík og því verður frítt inn í Halloween-gleðskapinn á laugardagskvöldið.