Halloween-partí á Lebowski Bar
Undanfarin ár hefur verið haldið upp á hrekkjavökuna á Lebowski Bar með glæsibrag og hefur partÍið stækkað ár frá ári. Segja eigendur staðarins að þetta sé eitt öflugasta og stærsta Halloween-partÍ í Reykjavík og þó víðar væri leitað. Gleðin verður á laugardagskvöldið og hefst kl. níu. DJ Gísli Veltan byrjar að spila þá en á miðnætti tekur DJ Antonius við.
Staðurinn verður skreyttur í anda hrekkjavökunnar og mjög flottir vinningar verða veittir fyrir bestu hrekkjavökubúningana. Það er því um að gera að mæta í góðum hrekkjavökubúningi á laugardagskvöldinu. Sérstakur Halloween-kokteill verður í boði frá því um tíuleytið. Óhætt er að lofa ógleymanlegri Halloween-stemningu á Lebowski Bar, Laugavegi 20a, laugardagskvöldið 29. október.